Síða 1 af 3

W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 12 Ágú 2014, 19:07
frá eyjolfsson
Sælir.

Nú er ég í miðjum klíðum við að gera upp þennan grip. Planið er að gera græju sem kemst hægt en örugglega um fjallavegi landsins.

Ég er búinn að rífa hann allan í tætlur og sandblása fyrir ryðbætur og sé að ég þarf að skipta út aftur bodypörtunum, hornin eru í henglum.

Það væri frábært að fá ráð hérna hjá þeim sem hafa gert upp svona bíla hér á landi.

Ég er kominn í samband í Höskuld bílapartasmið sem gæti tekið tíma og vil gjarnan athuga fleiri möguleika ef þeir eru. Er hægt að panta þessa bodyhluta að utan?

Einnig sé ég fram á að vanta öll gluggagúmmí ásamt bodyskrúfum á bretti, innri og ytri.

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 12 Ágú 2014, 23:08
frá velox
Spennandi verkefni, hef pantað hérna:
http://fourbyfourclub.com/W463BodyParts/W463BODY2.htm" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 14 Ágú 2014, 13:33
frá eyjolfsson
Ég er að berjast við að logga mig inn á Club Lounge svæðið.

Ég fékk Ice númer í Apríl 2014. Er eðlilegt að það taki svona langan tíma að komast þarna inn?

Ég vil gjarnan komast þarna inn sem fyrst til að komast betur að varahlutum etc...

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 14 Ágú 2014, 16:21
frá Benni
eyjolfsson skrifaði:Ég er að berjast við að logga mig inn á Club Lounge svæðið.

Ég fékk Ice númer í Apríl 2014. Er eðlilegt að það taki svona langan tíma að komast þarna inn?

Ég vil gjarnan komast þarna inn sem fyrst til að komast betur að varahlutum etc...
Hmm... nei það á ekki að vera neitt vesen. Lykilorðið er sjálfkrafa eftirnafnið þitt með íslenskum stöfum ef það var skrifað þannig í kerfið.
Ef þetta gengur ekki þá endilega sendu mér línu, t.d. með einkapósti, og ég skal kíkja á þetta fyrir þig :)

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 14 Ágú 2014, 16:31
frá BaraBenz
Hvernig er það, virkar Mercedes vefurinn og EPC/WIS vel í öðru en Internet Explorer?

EPC/WIS uppsett á vél virkar ekki í öðru.

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 14 Ágú 2014, 20:22
frá Pascalpals
Ég nota alltaf chrome, en lenti alltaf i veseni útaf java. Vertu bara viss um All að vera með nýjustu uppfærslu og að eyða gömlu

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 19 Ágú 2014, 11:27
frá eyjolfsson
Eru menn hér almennt með sinn eigin bílskúr eða að leigja bílskúr til viðgerða?

Einnig hef ég heyrt að menn séu að leigja sér bil í verkstæði?

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 22 Sep 2014, 09:23
frá Gizmo
Það er búið að reyna horn smíðuð hér heima, orginal eða sleppa þessu alveg.

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 30 Sep 2014, 13:42
frá eyjolfsson
Orginal Partar komnir í hús, spennan er gríðarleg.

Re: W463 / 1992 (1993) GE230 (The Legend)

Innsent: 12 Jan 2015, 15:51
frá eyjolfsson