Álfelgur undir G463 til sölu

#1
Til sölu fjórar stráheilar og fínar álfelgur undir 463 bíl og sú fimmta, sem er aðeins skemmd fylgir með í kaupbæti. Þessa síðastnefndu má nota undir varadekkið, sem minnir mig á að ég á einmitt varadekksfestingu á 463 líka, já og plasthlífar inn í brettin sem passa vel við hinar.

Þessa felgur passa ekki undir gamla W460 dótið án spacera en fara vel undir Sprinter held ég.

Sendið mér línu eða hringið í s. 8988992 ef þið hafið áhuga á þessu dóti. Ég held að það sé mynd af felgunum í einhverjum þræði hér á vefnum.


Re: Álfelgur undir G463 til sölu

#5
Ég hef ekki hugmynd um offsettið en ég er til í að éta hattinn minn upp á að það eru menn sem lesa þessa síðu sem vita það. Það eina sem ég veit er að offsettið er meira á þessum felgum en þeim sem fara undir 460 bílana. Þessar ættu aftur á móti að passa vel undir Sprinter og VW sendibíla. Ég tók alla vega Sprinterfelgur og notaði sem efnivið þegar ég setti minn á fullorðinsdekk.