Til sölu fjórar stráheilar og fínar álfelgur undir 463 bíl og sú fimmta, sem er aðeins skemmd fylgir með í kaupbæti. Þessa síðastnefndu má nota undir varadekkið, sem minnir mig á að ég á einmitt varadekksfestingu á 463 líka, já og plasthlífar inn í brettin sem passa vel við hinar.
Þessa felgur passa ekki undir gamla W460 dótið án spacera en fara vel undir Sprinter held ég.
Sendið mér línu eða hringið í s. 8988992 ef þið hafið áhuga á þessu dóti. Ég held að það sé mynd af felgunum í einhverjum þræði hér á vefnum.
Re: Álfelgur undir G463 til sölu
#2Sæll, áttu myndir (eða hvar eru þær að finna hér á vefnum) sem þú getur sent mér?. steindorh@simnet.is
Re: Álfelgur undir G463 til sölu
#3Myndir hér á þessum þræði, frekar neðarlega undir breytingamyndunum og svo náttlega eitthvað á sjálfum bílnum.
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=10422" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=10422" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Álfelgur undir G463 til sölu
#4Hvað er "offsett-ið" á þeim (ET talan)?
Jón Ketilsson S. 8662773
Að eiga Benz eru trúarbrögð.
Að eiga Benz eru trúarbrögð.
Re: Álfelgur undir G463 til sölu
#5Ég hef ekki hugmynd um offsettið en ég er til í að éta hattinn minn upp á að það eru menn sem lesa þessa síðu sem vita það. Það eina sem ég veit er að offsettið er meira á þessum felgum en þeim sem fara undir 460 bílana. Þessar ættu aftur á móti að passa vel undir Sprinter og VW sendibíla. Ég tók alla vega Sprinterfelgur og notaði sem efnivið þegar ég setti minn á fullorðinsdekk.
Re: Álfelgur undir G463 til sölu
#6Ertu búin að selja þetta, ef ekki hvað ertu þá að hugsa um fyrir allar.
Kv, Geir.
Kv, Geir.
Re: Álfelgur undir G463 til sölu
#7Nei, ekki búinn að selja. Ég er alveg tilbúinn að hlusta á góð tilboð, jafnvel skipti á einhverju góðu skotvopni koma til greina.
Re: Álfelgur undir G463 til sölu
#8Felgurnar eru enn til sölu á uppsprengdu verði. Ýmis skipti koma til greina, t.d. á peningum, utanborðsmótor (t.d. 10 hö) eða góðri tvíhleypu, sjáfvirkri eða riffli.