Á höttunum eftir G-vagni

#1
Sælir stjörnumenn

Nú er ég að flytja til landsins og þarf að finna mér brúklegan jeppa. Nokkrar týpur eru til skoðunar en aðallega Range Rover, Defender og G-Wagon.

Helst vildi ég fá G-wagon en þeir eru vandfundnir og á nokkuð furðulegum verðum þegar þeir finnast.

Ég er ekki á höttunum eftir miklu verkefni, vil vel viðhaldinn bíl í þokkalegu standi en hann má vera gamall eða nýlegur, dísil eða bensín, sjálfskiptur eða beinskiptur, langur eða stuttur, skiptir ekki öllu máli. Hann á helst að vera óbreyttur en ég skoða breytta líka.

Ég fylgist með spjallinu hér hjá ykkur og veit svona sirka hvað er til - ég veit hinsvegar ekki hvað er fáanlegt, fyrir utan þennan 9 sæta hér aðeins neðar (sem ég veit ekki hvort er stórt verkefni eða ekki). Hann kæmi reyndar alveg til greina ef hann er þokkalega meðfarinn og verðið er skikkanlegt. Það mætti ryðbæta hann og sprauta þessvegna...

Öll aðstoð væri vel þegin...


Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

Re: Á höttunum eftir G-vagni

#3
Gaman að heyra af áhuga þínum á þessum frábæru bílum :D

Þessi lítur ansi spennandi út, spurning hvort verðmiðinn sé innan þeirra marka sem þú varst að hugsa um :roll:
http://v1.bilasolur.is/Car.asp?show=CAR ... _ID=112039" onclick="window.open(this.href);return false;

[img]http://v2.bilasolur.is/CarImage.aspx?s= ... 9482&w=440[/img]

Svo er það spurningin um þennan hérna, stutt í öldunginn og annaðhvort var hann Brabus eða Lorinzer "breyttur" (ef ég man það rétt - er um 19 ár frá því að ég var að umgangast gripinn :lol: ):
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=14826" onclick="window.open(this.href);return false;
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Á höttunum eftir G-vagni

#4
Benni skrifaði:Gaman að heyra af áhuga þínum á þessum frábæru bílum :D

Þessi lítur ansi spennandi út, spurning hvort verðmiðinn sé innan þeirra marka sem þú varst að hugsa um :roll:
http://v1.bilasolur.is/Car.asp?show=CAR ... _ID=112039" onclick="window.open(this.href);return false;

[img]http://v2.bilasolur.is/CarImage.aspx?s= ... 9482&w=440[/img]

Svo er það spurningin um þennan hérna, stutt í öldunginn og annaðhvort var hann Brabus eða Lorinzer "breyttur" (ef ég man það rétt - er um 19 ár frá því að ég var að umgangast gripinn :lol: ):
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=14826" onclick="window.open(this.href);return false;
3,3 millur fyrir 96 módelið af óbreyttum G - Ef miðað er við þessa verðlagningu hlýtur minn 93 módel á 38 tommum að vera á minnst 3 millur!! Þetta er náttúrlega brandaraverðlagning á þessum bílum

Re: Á höttunum eftir G-vagni

#5
Já, ég veit af þessum á 3,4 en þetta er bara aaaaaalltof dýrt að mínu mati fyrir 1996 módel. Hann er alveg innan budget þannig séð - enn bara of dýr - eiginlega bara rugl verð að mínu mati.

Þessi breytti hjá þér Einsi kæmi vel til greina... ég hef einmitt dáðst mikið að honum það væri kannski ekki úr vegi að heyra hvaða verðhugmyndir þú hefur?

Lorinserinn er virkilega djúsí bíll. 9 sæti :D

Það mætti kannski skoða Lorinserinn en ég hef sem stendur enga aðstöðu (né reynslu) til að vinna í svona boddíi. Er hann í góðu standi að öðru leiti - svona á meðan maður kæmi sér upp aðstöðu eða fengi aðstoð við að vinna boddíið undir málun?
Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

Re: Á höttunum eftir G-vagni

#6
Það er spurning hvað sé hægt að bjóða í '96 módelið þar sem verðið er eins og þið segið í hærri kantinum ;)

Hef ekki séð Lorinserinn nýlega en hann er líklega með vandamál á "stöðluðum stöðum". Spurning hvort að G-class sérfræðingarnir geti ekki deilt því meðal oss hvað ber að varast :mrgreen:

Og auðvitað um að gera að kíkja á bílinn hjá Einsa 8)
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Á höttunum eftir G-vagni

#7
Sko, alltaf þegar kemur að því að selja þennan bíl þá get ég bara ekki fengið af mér að gera það. Ég renni alltaf í gegnum bilasolur.is og tékka á því hvort að ég sjái eitthvað sem ig langar í og sé ekki neitt, ekki einn einasta bíl.

Re: Á höttunum eftir G-vagni

#8
Einsi skrifaði:Sko, alltaf þegar kemur að því að selja þennan bíl þá get ég bara ekki fengið af mér að gera það. Ég renni alltaf í gegnum bilasolur.is og tékka á því hvort að ég sjái eitthvað sem ig langar í og sé ekki neitt, ekki einn einasta bíl.
Jah, ef þú ert að leita að breyttum bíl þá skil ég það nú bara vel!

Annars þá er maður að melta þetta allt saman núna. Verst að ég er ekki enn komin heim til að geta skoðað þetta sjálfur en það er verið að tékka á einum bíl fyrir mig núna af "hinni" gerðinni... (RR :wink: )
Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

Re: Á höttunum eftir G-vagni

#10
Og þinn Ásgeir Yngvi er gullfallegur - það er engin spurning!

Kannski ég fái SE til að kíkja á hann fyrir mig þegar hann hefur tíma.

Mér finnst hann samt enn of dýr :wink:

Það helgast af tvennu, samkeppnin er hörð.. en ekki síður því að ég þarf að nota jeppann sem algjöran brúgsbíl og því er kannski skynsamlegra að leita eftir einhverju sem virkar, en þarf kannski ekki útlitslega að vera nógu fínt og fágað til að duga í leikhúsferð.

Það þarf að flytja drasl í þessu í sumarbústað og ferðast...
Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is