Síða 1 af 2
Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 18 Sep 2009, 12:56
frá Bebecar
Sælir stjörnumenn
Nú er ég að flytja til landsins og þarf að finna mér brúklegan jeppa. Nokkrar týpur eru til skoðunar en aðallega Range Rover, Defender og G-Wagon.
Helst vildi ég fá G-wagon en þeir eru vandfundnir og á nokkuð furðulegum verðum þegar þeir finnast.
Ég er ekki á höttunum eftir miklu verkefni, vil vel viðhaldinn bíl í þokkalegu standi en hann má vera gamall eða nýlegur, dísil eða bensín, sjálfskiptur eða beinskiptur, langur eða stuttur, skiptir ekki öllu máli. Hann á helst að vera óbreyttur en ég skoða breytta líka.
Ég fylgist með spjallinu hér hjá ykkur og veit svona sirka hvað er til - ég veit hinsvegar ekki hvað er fáanlegt, fyrir utan þennan 9 sæta hér aðeins neðar (sem ég veit ekki hvort er stórt verkefni eða ekki). Hann kæmi reyndar alveg til greina ef hann er þokkalega meðfarinn og verðið er skikkanlegt. Það mætti ryðbæta hann og sprauta þessvegna...
Öll aðstoð væri vel þegin...
Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 18 Sep 2009, 13:31
frá Einsi
Ég er náttúrulega alltaf til í að ræða tilboð í minn, sem er einn sá flottasti af þeim þeim sem eru alvöru breyttir.
Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 18 Sep 2009, 16:00
frá Benni
Gaman að heyra af áhuga þínum á þessum frábæru bílum
Þessi lítur ansi spennandi út, spurning hvort verðmiðinn sé innan þeirra marka sem þú varst að hugsa um
http://v1.bilasolur.is/Car.asp?show=CAR ... _ID=112039" onclick="window.open(this.href);return false;
[img]
http://v2.bilasolur.is/CarImage.aspx?s= ... 9482&w=440[/img]
Svo er það spurningin um þennan hérna, stutt í öldunginn og annaðhvort var hann Brabus eða Lorinzer "breyttur" (ef ég man það rétt - er um 19 ár frá því að ég var að umgangast gripinn

):
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=14826" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 18 Sep 2009, 23:56
frá Einsi
3,3 millur fyrir 96 módelið af óbreyttum G - Ef miðað er við þessa verðlagningu hlýtur minn 93 módel á 38 tommum að vera á minnst 3 millur!! Þetta er náttúrlega brandaraverðlagning á þessum bílum
Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 20 Sep 2009, 14:36
frá Bebecar
Já, ég veit af þessum á 3,4 en þetta er bara aaaaaalltof dýrt að mínu mati fyrir 1996 módel. Hann er alveg innan budget þannig séð - enn bara of dýr - eiginlega bara rugl verð að mínu mati.
Þessi breytti hjá þér Einsi kæmi vel til greina... ég hef einmitt dáðst mikið að honum það væri kannski ekki úr vegi að heyra hvaða verðhugmyndir þú hefur?
Lorinserinn er virkilega djúsí bíll. 9 sæti
Það mætti kannski skoða Lorinserinn en ég hef sem stendur enga aðstöðu (né reynslu) til að vinna í svona boddíi. Er hann í góðu standi að öðru leiti - svona á meðan maður kæmi sér upp aðstöðu eða fengi aðstoð við að vinna boddíið undir málun?
Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 20 Sep 2009, 20:49
frá Benni
Það er spurning hvað sé hægt að bjóða í '96 módelið þar sem verðið er eins og þið segið í hærri kantinum
Hef ekki séð Lorinserinn nýlega en hann er líklega með vandamál á "stöðluðum stöðum". Spurning hvort að G-class sérfræðingarnir geti ekki deilt því meðal oss hvað ber að varast
Og auðvitað um að gera að kíkja á bílinn hjá Einsa

Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 22 Sep 2009, 10:31
frá Einsi
Sko, alltaf þegar kemur að því að selja þennan bíl þá get ég bara ekki fengið af mér að gera það. Ég renni alltaf í gegnum bilasolur.is og tékka á því hvort að ég sjái eitthvað sem ig langar í og sé ekki neitt, ekki einn einasta bíl.
Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 23 Sep 2009, 11:05
frá Bebecar
Einsi skrifaði:Sko, alltaf þegar kemur að því að selja þennan bíl þá get ég bara ekki fengið af mér að gera það. Ég renni alltaf í gegnum bilasolur.is og tékka á því hvort að ég sjái eitthvað sem ig langar í og sé ekki neitt, ekki einn einasta bíl.
Jah, ef þú ert að leita að breyttum bíl þá skil ég það nú bara vel!
Annars þá er maður að melta þetta allt saman núna. Verst að ég er ekki enn komin heim til að geta skoðað þetta sjálfur en það er verið að tékka á einum bíl fyrir mig núna af "hinni" gerðinni... (RR

)
Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 24 Sep 2009, 23:38
frá Ásgeir Yngvi
[img]
http://www.fotothing.com/photos/e3f/e3f ... 1e_9c6.jpg[/img]
....þessi fer líklega í bæinn á sölu um helgina.......
Re: Á höttunum eftir G-vagni
Innsent: 25 Sep 2009, 11:03
frá Bebecar
Og þinn Ásgeir Yngvi er gullfallegur - það er engin spurning!
Kannski ég fái SE til að kíkja á hann fyrir mig þegar hann hefur tíma.
Mér finnst hann samt enn of dýr
Það helgast af tvennu, samkeppnin er hörð.. en ekki síður því að ég þarf að nota jeppann sem algjöran brúgsbíl og því er kannski skynsamlegra að leita eftir einhverju sem virkar, en þarf kannski ekki útlitslega að vera nógu fínt og fágað til að duga í leikhúsferð.
Það þarf að flytja drasl í þessu í sumarbústað og ferðast...