Re: Myndir af W460/W461 Gelander

#143
Sælir

Datt í hug að kynna mig fyrst að það er komin mynd af kagganum hérna inn. Eyjólfur heiti ég og er eigandi að þessum stutta svarta. (U-4501) Upphaflega hefur hann verið hvítur, síðan var hann málaður rauður og hvítur og sá sem átti hann á undan mér ætlaði sér að nota hann sem veiðibíl og rúllaði hann því svartan. Gúmmílistana, inn á ljósin og alles. Lakkið er því orðið heldur þykkt á honum en það stendur til að fjarlægja það allt.

Mekaníkin í honum er í fína lagi fyrir utan bilunina sem kyrrsetti hann hjá mér í bili en driflæsingin að framan festist í lás. Það er ekkert sem kemur vökvadælunni við heldur virðast tengslin milli slífarinnar og læsingarkransins inni í hásingunni hafa brotnað. Bömmer. Ef einhver liggur á framhásingu eða varahlutum í hana á viðráðanlegu verði þá endilega réttið upp hönd.

Svo er hann náttúrulega vel ryðgaður. Hann fer inn í skúr hjá mér núna í haust og ég dunda við hann í rólegheitunum.

Flott framtak að halda myndaþráðunum lifandi!

Eyjólfur B. Sigurjónsson

Re: Myndir af W460/W461 Gelander

#144
Takk fyrir þessar upplýsingar Eyjólfur, alltaf gaman að hafa svona smá upplýsingar um bílana.

Varðandi hásinguna, þá ættir þú kannski að tala við Rúnar hjá Bíladoktornum og/eða Gunnar Örn hér á spjallinu. Þeir keyptu upp alla w460 Gelander-bíla sem þeir komust yfir á tímabili. Þeir hjóta að eiga hásingu fyrir þig...
Sveinn

Re: Myndir af W460/W461 Gelander

#148
Það má laga textann við myndina af mínum. Þar stendur núna (6.9.2012)
IP-826, 280GE (nú 300GD), 1985
en það er ekki rétt, hann er enn með upphaflegu vélina, 280. Seiseijú. Þurfti reyndar að skipta um heddpakkninguna á síðasta ári. Pældi mikið í að setja 300 í hann en hætti við.
Líklega búið að keyra hann um 400.000 km.
Benz kveðja,
Bergur Pálsson
GE 280, "85
R 350, "06
A 160, "98

Re: Myndir af W460/W461 Gelander

#149
Bjarni Þorgils er búinn að vera duglegur við að grafa upp W460 bíla og eru tveir nýir komir í skránna. Annar þerra er en ofanjarðar (HU-715), en hinn kominn undir græna torfu fyrir einhverjum árum (HJ-541).

Við erum þá búnir að finna 57 af 57! :shock:

...nei, sennilega eru þeir nú fleiri :) Spurningin er bara hvernig þeir eru skráðir í Bifreiðaskrá, en ég held að þessi listi með 57 bílum hafi verið tekinn út miðað við að verksmiðjunúmerið byrji á WDB460... Kannski voru einhverjir skráðir án þess að WDB sé fremst í númerinu... kannski aðrir með W460...

WDB46023817047132, R-20181, HU-715, 230GE 1986 WDB46033217025365, R-21676, HJ-541, 300GD 1982
Sveinn