"A supercharger is an air compressor used for forced induction of an internal combustion engine"
"The first functional supercharger can be attributed to German engineer
Gottlieb Daimler, who received a German patent for supercharging an internal combustion engine in 1885"
Það þarf ekkert að spyrja hver fann þetta undratæki upp frekar en aðra snilld sem komið hefur fram í bílaiðnaðinum.
Supercharger/Kompressor/Blower/Blásari eru nöfn á túrbínum sem eru drifnar af öðru en útblásturslofti og eru í eðli sínu ekkert annað en loftdælur. Þeim má skipta í tvo megin flokka,
positive-displacement compressor og
dynamic compressor.
Positive displacement compressor:
Byggir á því að gefa í skömmtum alltaf jafn mikið loft fyrir hvern snúning vélarinnar, alveg sama hver hann er, mínus lekinn sem er þó nokkuð jafn yfir snúningssviðið sem verður til þess að hann skiptir minna máli á hærri snúningi en lægri.
Gott dæmi um positive displacement blásara er Roots blásarinn, stundum kallaður keflablásari á íslensku.
[img]
http://upload.wikimedia.org/wikipedia/c ... mp.svg.png[/img]
Roots Supercharger
Annað þekkt form af positive displacement blásurum eru skrúfu/snigil blásari sem heitir víst Lysholm Screw og nefndur eftir Alf Lysholm sem fann hann upp. Byggir hann á því að þjappa lofti milli tveggja pinion style snigla, og ef þið horfið á myndina, þá sjáið þið að fyrir hvern snúning vélarinnar fer alltaf jafn mikið loft í gegnum hann, mínus lekinn auðvitað.
[img]
http://upload.wikimedia.org/wikipedia/c ... rotors.jpg[/img]
Lysholm Screw Supercharger
Fleiri útgáfur af positive displacement blásurum eru td:
Powerplus (svokallaður "sliding vane") notaður í MG bílum, Scroll Type supercharger notaður undir nafninu G-Ladder af Volkswagen o.s.frv.
Dynamic Compressor:
Þessi tegund blásara byggir á því að hraða loftinu og nýta síðan Bernoulli lögmálið til þess að skipta hraðanum út fyrir þrýsting. Nú ætla ég ekki að fara að útskýra Bernoulli í þaula, en það að loftið fer mun hraðar inn í blásarann en frá honum inn í mótorinn ætti að segja allt sem segja þarf.
Þekktasta tegund þessara blásara er að sjálfsögðu centrifugal/centripedal blásarinn:
[img]
http://www.turbinetechnologies.com/images/03242005a.jpg[/img]
Centrifugal Compressor
loftið sogast framan á compressorinn, byrjar að snúast þegar það lendir í rotorunum og hendist út á við á miklum hraða vegna miðflóttarafls. Þessi tegund hefur það fram yfir positive displacement blásarana að þeir auka stöðugt það loftmagn sem í gegnum þá fer eftir því sem snúningurinn eykst.
Þess má til gamans geta að fyrstu tegundir þotuhreyfla voru einmitt svokallaðir centrifugal gas turbine engines, enda er þotuhreyfill ekkert annað en gríðarlega öflugur blásari sem byggir einmitt á Bernaulli lögmálinu.
Aðrar tegundir Dynamic Compressora eru td. svokallaður Multi-Stage Axial-Flow Compressor (nútíma þotuhreyflar eru einmitt af þeirri gerð), og Pressure Wave Supercharger sem er í raun tegund af afgas túrbínu, en þó allt öðruvísi uppbyggður en þessi venjulega.
Svo er þetta bara spurningin um það hvernig blásarinn er drifinn áfram, belti, keðjur, gíraður eða whatever.......