#11
Óli Kol skrifaði:Það var ekkert til af þessum síum hjá AP varahlutum en þeir hjá Ræsi áttu þetta til,eitthvað hjá Bílanaust og Stillingu.
Hér koma verðin:
Ræsir:Olíusía kr.510. Bensínsía kr.4000.
Bílanaust: Olíusía kr.600 Bensínsía kr.2.200.
Stilling:Olíusía kr.1.100.
Já var það ekki.

Ekki kaupa smurolíusíu í Bilanaust. Hún heitir FRAM og það er ávísun á sorgarsögu fyrir Benz. Ég hef ekkert út að FRAM síur að setja í örfáum útvöldum síum. Benz er ekki í þeim útvalda flokki og það eru lífshættuleg mistök að setja Fram síu í Benz. Mér var eitt sinn tjáð á vélaverkstæði hér í borg sem tekur að sér uppgerð véla, að ef þeir fengju mjög illa úrbrædda Benz vél til viðgerðar, að þá tækju þeir yfirleitt Fram síu úr síuhúsinu Samt notaði þetta verkstæði eitthvað af FRAM síum í aðra bíla.

Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#13
Mercedes-Benz skrifaði:

Er ekki bezt að kaupa original síur í þessa gömlu gæðinga
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222

http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

#14
RA skrifaði:Þið ættuð bara að setja Mobil1 á Benzana hvort sem þeir eru gamlir eða ekki. Mobil1 ver vélinna best í kaldræsingu og í köldum gangi. Því lægri sem fyrri talan er því betra fyrir kaldan gang. Mér finnst 15W40 of þykk olia sérstaklega á veturna
RANGT!

Margir af þessum gömlu bílum hafa grófsmíðaðar vélar sem búa til mikið af bensíngufum í olíuna. Þeir voru sumir eins og Pontoninn minn og Hekkararnir hannaðir þegar olíur voru einþykkar (t.d. 30 olía) og þola því ekki vel að mínu mati lága fyrri tölu á fjölþykktarolíu. Þessir bílar eru líka yfirleitt í geymslum á veturna og ætti því að vera á sumarolíu sem samkvæmt eigendahandbók W123 t.d. er 15W-40 en hún er uppgefin á fyrir hitastig frá -15°C og upp úr í hita. Hvaða olía getur því hentað betur fyrir sumar á Íslandi sem er með hita frá 0 upp í 20 gráður.

Mobil 1 er hágæða gerviefnaolía sem hugsuð er fyrir vélar sem fara vel með olíu til langtímanota og getur þolað mikið álag. Mjög gamlir bílar fara ekki vel með olíur. Þeir bæði brenna meira (Pontoninn minn á samkv. uppl. frá MB á að brenna 1,5 lítrum á hverjum 1000 km ) Þeir metta olíur fljótt af bensíngufum sem skemma olíuna og flestir hafa þeir nú líka þann galla að leka aðeins líka. Að kaupa olíu á slíkan bíl sem kostar alveg þrefallt meira, gerir bílnum þínum ekkert betur og endist ekkert betur, vegna þess hvernig bíllinn fer með olíuna, er eitthvað það heimskulegasta bull sem menn geta gert.

Fornbílar eru líka ekki notaðir það mikið og ekki er alltaf verið í kappakstri á þeim nema síður sé.

Það á bara að nota efnabættu jarðefnaolíuna í rauðu brúsunum frá ESSO á þessa gömlu. Hún er ódýr og góð, brennur vel, mettast ekkert hraðar, og lekur alveg jafn hratt eins og Mobil 1 og aðrar gæðaolíur fyrir nútímabíla. Svo á bara að skipta um olíu á hverju hausti á þeim og þá er allt í toppstandi, ódýrt og gott
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#16
RA skrifaði:Átss þarna var ég tekinn í rassg.... Hvenær myndir þú þá byrja nota Mobil1 Rúnar þeas á hvaða árg, td 1980, 990 eða bara 2000
Á yngri mótora með beinni innspítingu eða frá og með 102 mótornum sem kemur 1981 í W123, og 103 vélinni sem kemur fyrst í W126 bínum 1985. Ég mynndi ekki nota hana á 110 vélina sem var í 280, 280E (w123) og 280S og 280SE (126). Þar myndi ég nota þá rauðu eða þessa semi synthetic í dökkbláu brúsunum 10W-40.

Á alla 124 bílana er allt í lagi að nota hana, ef bíllinn er ekki þeimum minna notaður (innan við 10.000 á ári) og eins á alla bíla sem eru yngri en það.

Á alla díselbíla sem eru í notkun meira en 20.000 km á ári myndi ég líklega mæla með notkun á Mobil 1 eða XTS501 10W-40 frá ESSO, en sú síðarnefnda myndi einnig hennta á díselbíla sem ekki eru mikið notaðir, og skipta þá um olíu að lágmarki annað hvert ár, og þá að hausti sé bíllinn lítið notaður og aðeins notaður á sumrin.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)