RA skrifaði:Þið ættuð bara að setja Mobil1 á Benzana hvort sem þeir eru gamlir eða ekki. Mobil1 ver vélinna best í kaldræsingu og í köldum gangi. Því lægri sem fyrri talan er því betra fyrir kaldan gang. Mér finnst 15W40 of þykk olia sérstaklega á veturna
RANGT!
Margir af þessum gömlu bílum hafa grófsmíðaðar vélar sem búa til mikið af bensíngufum í olíuna. Þeir voru sumir eins og Pontoninn minn og Hekkararnir hannaðir þegar olíur voru einþykkar (t.d. 30 olía) og þola því ekki vel að mínu mati lága fyrri tölu á fjölþykktarolíu. Þessir bílar eru líka yfirleitt í geymslum á veturna og ætti því að vera á sumarolíu sem samkvæmt eigendahandbók W123 t.d. er 15W-40 en hún er uppgefin á fyrir hitastig frá -15°C og upp úr í hita. Hvaða olía getur því hentað betur fyrir sumar á Íslandi sem er með hita frá 0 upp í 20 gráður.
Mobil 1 er hágæða gerviefnaolía sem hugsuð er fyrir vélar sem fara vel með olíu til langtímanota og getur þolað mikið álag. Mjög gamlir bílar fara ekki vel með olíur. Þeir bæði brenna meira (Pontoninn minn á samkv. uppl. frá MB á að brenna 1,5 lítrum á hverjum 1000 km ) Þeir metta olíur fljótt af bensíngufum sem skemma olíuna og flestir hafa þeir nú líka þann galla að leka aðeins líka. Að kaupa olíu á slíkan bíl sem kostar alveg þrefallt meira, gerir bílnum þínum ekkert betur og endist ekkert betur, vegna þess hvernig bíllinn fer með olíuna, er eitthvað það heimskulegasta bull sem menn geta gert.
Fornbílar eru líka ekki notaðir það mikið og ekki er alltaf verið í kappakstri á þeim nema síður sé.
Það á bara að nota efnabættu jarðefnaolíuna í rauðu brúsunum frá ESSO á þessa gömlu. Hún er ódýr og góð, brennur vel, mettast ekkert hraðar, og lekur alveg jafn hratt eins og Mobil 1 og aðrar gæðaolíur fyrir nútímabíla. Svo á bara að skipta um olíu á hverju hausti á þeim og þá er allt í toppstandi, ódýrt og gott
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
