Rafmagns vesen í E190 92 módel.

#1
Daginn.

Ég á E120, 1992 módel, búinn að eiga hann í 3 ár og er algjör draumur, nú í vor fór að vera eitthvað vesen á rafmagninu. Hann byrjaði á því að vera eineygður að framan og aftan, það gekk til baka. Svo fór ljósið í mælaborðinu stuttu seina, hann gefur ekki hljóð frá sér þegar ljósin eru skilin eftir kveikt, og það sem verst er að hann er hættur að gefa stefnuljós, en þau koma þó stundum, það heyrist sérkennilegt hljóð þegar ég reyni að gefa stefnuljós, til að toppa þetta þá fara sætisbeltaljósin á blikka þegar ég hreyfi stöngina. Rúðuþurkurnar virka og allt annað, þar á meðal viðvörunarljósin.

Hvað er til ráða? Bíladoktorinn forðast að fara í rafmagnsvesen í bílum.

Las að það væri ráð að setja kopar öryggi, skipta bara um öll.

Getið þið mælt með einhverju, eða einhverjum ?


Hafliði
Seinast breytt af haflidih þann 09 Apr 2015, 22:16, breytt 1 sinni alls.


Re: Rafmagns vesen í E120 92 módel.

#2
Þú getur prófað að snúa öllum öryggjunum í sætunum.

Þá skefst áfellingin og það gæti lagast tímabundið.

Ef svo er þá er betra að skipta þeim út.

Koparöryggi segja menn að séu þau bestu. Fást hjá Wurth og víst einnig á Olís við Sæbrautina. Rétt við víkingaskipið.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Rafmagns vesen í E190 92 módel.

#4
Til að byrja með, hvernig bíll er þetta nákvæmlega :? Ég er nokkuð viss um að það er ekki til neitt sem heitir Benz 120, annars er öryggjaboxið yfirleitt fram í húddi bílstjóramegin :wink:
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
cron