S211/W211 leki við stýrismaskínu

#1
Sælt veri fólkið.


Er með S211 280Cdi '04 sem er alveg hreinn unaður fyrir utan að vera með lekanda á stýrismaskínu.

Er einhver sem þekkir þessa bíla vel?
Það virðist sem lekinn sé ofarlega, þar sem merkt er með skiptilykli og "210" á þessari mynd.

Er einhver möguleiki að það sé hægt að laga þetta, t.d. að skipta um pakkdós, eða þarf að skipta um allan rakkann?


S211 E280 CDI '04
W201 2.3L 8v '92 - Seldur
W201 2.0L 8v '90 - Klesstur

Re: S211/W211 leki við stýrismaskínu

#4
Ég var í vandræðum með stýrisvél í W210 4Matic. Frekar dýrt að gera við þær.

Ég fékk mér uppgerða stýrisvél frá Þýskalandi og kostaði um 120.000.- heim komin. Svo tók lítinn tíma að skipta um hana.

Betra en að vera með bílinn stopp á meðan það er verið að gera upp stýrisvélina.

Svo veit ég til þess að Bíladoktorinn átti eitthvað af pakkningasettum í einhverjar stýrisvélar. Gæti dugað ef hann á fyrir þessa stýrisvél og stimplarnir/öxull er ekki illa farið.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: S211/W211 leki við stýrismaskínu

#5
BaraBenz skrifaði:Ég var í vandræðum með stýrisvél í W210 4Matic. Frekar dýrt að gera við þær.

Ég fékk mér uppgerða stýrisvél frá Þýskalandi og kostaði um 120.000.- heim komin. Svo tók lítinn tíma að skipta um hana.

Betra en að vera með bílinn stopp á meðan það er verið að gera upp stýrisvélina.

Svo veit ég til þess að Bíladoktorinn átti eitthvað af pakkningasettum í einhverjar stýrisvélar. Gæti dugað ef hann á fyrir þessa stýrisvél og stimplarnir/öxull er ekki illa farið.
Sæll, takk fyrir svarið.

Pantaðir þú hana sjálfur? Í gegnum hvaða aðila/síðu?

Bíladoktorinn lét mig vita að hún væri að leka og sagði að það þyrfti að skipta um hana. Ég fór í eitthvað dekkjastúss í vikunni og þá fékk ég ábendingu frá einum þar að það gæti verið hægt að laga þetta, langaði að fá annan aðila til að kíkja á þetta til að vera viss.

Ég fékk verð upp á ca. 250þús í komið frá Bíladoktor.
190þús fyrir maskínuna með 12 mánaða ábyrgð frá Europörtum.
Í báðum tilvikum var þetta notuð maskína.
S211 E280 CDI '04
W201 2.3L 8v '92 - Seldur
W201 2.0L 8v '90 - Klesstur

Re: S211/W211 leki við stýrismaskínu

#6
Ég pantaði hana sjálfur. Finn ekki hvar ég keypti hana.

Fann hana á ebay.de Yfirleitt selja þeir bara innanlands en ég spurði hvort þeir myndu selja mér hana og senda til Íslands og það var ekkert mál.

Getur alltaf verið áhættusamt.

Það eru líka margar stýrisvélar sem koma til greina eftir hvaða bíll þetta er miðað við EPC.

Hér er leit um eina þeirra.

http://www.ebay.de/sch/i.html?_from=R40 ... c=3&_rdc=1
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.
cron