BaraBenz skrifaði:Ég var í vandræðum með stýrisvél í W210 4Matic. Frekar dýrt að gera við þær.
Ég fékk mér uppgerða stýrisvél frá Þýskalandi og kostaði um 120.000.- heim komin. Svo tók lítinn tíma að skipta um hana.
Betra en að vera með bílinn stopp á meðan það er verið að gera upp stýrisvélina.
Svo veit ég til þess að Bíladoktorinn átti eitthvað af pakkningasettum í einhverjar stýrisvélar. Gæti dugað ef hann á fyrir þessa stýrisvél og stimplarnir/öxull er ekki illa farið.
Sæll, takk fyrir svarið.
Pantaðir þú hana sjálfur? Í gegnum hvaða aðila/síðu?
Bíladoktorinn lét mig vita að hún væri að leka og sagði að það þyrfti að skipta um hana. Ég fór í eitthvað dekkjastúss í vikunni og þá fékk ég ábendingu frá einum þar að það gæti verið hægt að laga þetta, langaði að fá annan aðila til að kíkja á þetta til að vera viss.
Ég fékk verð upp á ca. 250þús í komið frá Bíladoktor.
190þús fyrir maskínuna með 12 mánaða ábyrgð frá Europörtum.
Í báðum tilvikum var þetta notuð maskína.