Vantar varahluti í R107 450SL

#1
Sælir spjallmeðlimir.

Ég er með gullfallegan '73 450SL R107 sem hefur verið mikill bílskúrs bíll síðastliðin ár. Nú er kominn tími á að taka í gegn eitt og annað í bílnum og gera hann aðeins upp. Næst á dagskrá er að taka upp í honum drifið og var ég að velta því fyrir mér hvort þið lumuðuð á góðri síðu til að panta hluti í slíkan bíl?

Ég er búinn að finna notað drif eins og það leggur sig á Ebay fyrir 800$ + shipping svo það gæti orðið heldur dýrt að flytja allt drifið inn. Það er því spurning hvort hagstæðara sé að flytja inn hluti í drifið og raða í gamla húsið nýjum hlutum.

Allar ábendingar varðandi þetta og önnur mál tengd þessum bíl eru vel þegnar.

Bestu kveðjur,
Grétar Már,
s. 7701614.