Síða 1 af 1

Vantar varahluti í R107 450SL

Innsent: 18 Okt 2014, 18:09
frá Grellinn
Sælir spjallmeðlimir.

Ég er með gullfallegan '73 450SL R107 sem hefur verið mikill bílskúrs bíll síðastliðin ár. Nú er kominn tími á að taka í gegn eitt og annað í bílnum og gera hann aðeins upp. Næst á dagskrá er að taka upp í honum drifið og var ég að velta því fyrir mér hvort þið lumuðuð á góðri síðu til að panta hluti í slíkan bíl?

Ég er búinn að finna notað drif eins og það leggur sig á Ebay fyrir 800$ + shipping svo það gæti orðið heldur dýrt að flytja allt drifið inn. Það er því spurning hvort hagstæðara sé að flytja inn hluti í drifið og raða í gamla húsið nýjum hlutum.

Allar ábendingar varðandi þetta og önnur mál tengd þessum bíl eru vel þegnar.

Bestu kveðjur,
Grétar Már,
s. 7701614.

Re: Vantar varahluti í R107 450SL

Innsent: 20 Okt 2014, 19:48
frá Hlynzi
Senda bara fyrirspurn á verkstæðin hvað kostar að fá allt nýtt í þetta ásamt vinnu ?

Re: Vantar varahluti í R107 450SL

Innsent: 23 Okt 2014, 15:26
frá Gizmo
ég á svona drif úr 450SLC, hefði gott af nýjum legum og pakkdósum en annars ok

Re: Vantar varahluti í R107 450SL

Innsent: 23 Okt 2014, 17:24
frá Benni
Bendi einnig á varahlutatilboð Öskju sem er að finna hér:
http://mbclub.is/spjall/viewtopic.php?f=6&t=23529" onclick="window.open(this.href);return false;
Það er eitthvað til af hlutum fyrir R107 þar, bæði undir vélbúnaður og SL-Class.

Re: Vantar varahluti í R107 450SL

Innsent: 29 Okt 2014, 17:12
frá Grellinn
Kærar þakkir fyrir svörin. Málið er leyst.