Kælivökvi - spurningar

#1
Ég leit á stöðuna á kælivökvanum í tankinum áðan og sá að vökvahæðin var á "low". Þar af leiðandi þarf ég að bæta í tankinn.

Upphófst þá leit á google hvaða kælivökva á að setja á bílinn þar sem ég er ekki fróður um þessi mál. Samkvæmt uppskriftinni virðist eiga að setja "ethylene-glycol base coolant" á suzuki bílinn minn. Á N1 fann ég Comma Xstream G48 sem samkvæmt innihaldslýsingu virðist stemma við kröfurnar. Svo sýnist mér að maður blandi hann 50/50 með vatni til að ná frostþoli fyrir -36°C.

Á einni vefsíðu var tekið fram að skynsamlegt væri að endurnýja vökvann á einhverra ára fresti. Er það eitthvað sem maður gerir almennt á eldri bílum?

Einnig las ég að hægt sé að láta mæla frostþol kælivökvans fyrir veturinn. Er það eitthvað sem maður gerir almennt? Ef svo er, hvar getur maður látið gera það?


Sigurður Rúnar Birgisson but you can call me Siggi.
S. 847-6196

Mercedes Benz (w203) C32 AMG - 2001 - Seldur
Mitsubishi 3000GT SL - 1994 - Seldur
Suzuki Baleno - 1998
Mercedes Benz (W202) C36 AMG - 1996 - Seldur
Mercedes Benz (W124) E220 - 1994 - Seldur
Viðhengi
20140928_164429_resized.jpg
20140928_164412_resized.jpg

Re: Kælivökvi - spurningar

#2
Það er talað um að endurnýja kælivökvann á 5 ára fresti (þessi græni). Hann súrnar og oft talað um að gamall kælivökvi sé ein af orsökum þess að heddpakkningar fari. Veit að þeir á Klöpp geta tappað af kælivökva (alveg) og hreinsað kerfið. Gerði það einu sinni fyrir nokkrum árum, en það kostaði smá man ég...

En það er of algent að fólk endurnýji aldrei kælivökva og hemlavökva...
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!