Kælivökvi - spurningar
Innsent: 28 Sep 2014, 22:09
Ég leit á stöðuna á kælivökvanum í tankinum áðan og sá að vökvahæðin var á "low". Þar af leiðandi þarf ég að bæta í tankinn.
Upphófst þá leit á google hvaða kælivökva á að setja á bílinn þar sem ég er ekki fróður um þessi mál. Samkvæmt uppskriftinni virðist eiga að setja "ethylene-glycol base coolant" á suzuki bílinn minn. Á N1 fann ég Comma Xstream G48 sem samkvæmt innihaldslýsingu virðist stemma við kröfurnar. Svo sýnist mér að maður blandi hann 50/50 með vatni til að ná frostþoli fyrir -36°C.
Á einni vefsíðu var tekið fram að skynsamlegt væri að endurnýja vökvann á einhverra ára fresti. Er það eitthvað sem maður gerir almennt á eldri bílum?
Einnig las ég að hægt sé að láta mæla frostþol kælivökvans fyrir veturinn. Er það eitthvað sem maður gerir almennt? Ef svo er, hvar getur maður látið gera það?