Veit ekki hvort þetta komi tækni horni beint við, en jæja
Ætla að leggja 94 e220 mínum yfir veturinn, hann er heill að utan i flesta staði og langar að sjálfsögðu að halda honum sem lengst þannig.
Hef heyrt misjafnar sögur með langvarandi (fram a vor) innigeymslu sögur, og jafnvel heyrt að það sé betra að geyma þá úti yfir veturinn, þá sérstaklega þ.s ég bý norðurpól landsins.
Eða erum við að tala um kosti og galla, inni; betur með mekanisman, úti; betur með lakk??
Þigg allar ábendingar, svona rétt áður en frystir hér i helvíti
Þakkir, Gunnar