Inni eða úti?

#1
Sælir gárungar og bersevissar!

Veit ekki hvort þetta komi tækni horni beint við, en jæja :)
Ætla að leggja 94 e220 mínum yfir veturinn, hann er heill að utan i flesta staði og langar að sjálfsögðu að halda honum sem lengst þannig.
Hef heyrt misjafnar sögur með langvarandi (fram a vor) innigeymslu sögur, og jafnvel heyrt að það sé betra að geyma þá úti yfir veturinn, þá sérstaklega þ.s ég bý norðurpól landsins.
Eða erum við að tala um kosti og galla, inni; betur með mekanisman, úti; betur með lakk??
Þigg allar ábendingar, svona rétt áður en frystir hér i helvíti

Þakkir, Gunnar


Re: Inni eða úti?

#2
Ef geymslan sem bíllin er geymdur í er upphituð og músalaus veit ég ekki af hverju það ætti að hafa slæm áhrif.
Ásgeir Örn Arnarson
S: 8460963

M.Benz E420 '93 sportline "AMG"
M.Benz 190e 3.0 twinturbo '89 bsk sportline
M.Benz 190e 2.0 '91 - seldur
M.Benz 300ce '88 - seldur
M.Benz 280se '83 - seldur
M.Benz 230e '83 - seldur

Re: Inni eða úti?

#3
Ásgeir Örn skrifaði:Ef geymslan sem bíllin er geymdur í er upphituð og músalaus veit ég ekki af hverju það ætti að hafa slæm áhrif.
Sem eg best veit. Þá ja er hun það.
Fékk að heyra þetta bara um daginn, að einhverjir snillingar utí bæ sem vildu meina þetta, og sérstaklega því snjórinn og frostið einangraði bílinn svo vel,

Re: Inni eða úti?

#4
Ég hef heyrt að bílar sem standa inn í skúr með heitan ofn með annarri hliðinni kolryðgi þeim megin. Ætli þetta megi ekki helst rekja til bíla sem eru í notkun í saltinu og svo geymdir inni yfir nóttina við heitan ofn.

En inni er ábyggilega betra að geyma hann heldur en úti. Þess vegna eru menn að leigja pláss fyrir bílana sína yfir veturinn.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Inni eða úti?

#5
Auðvitað er betra að geyma bílinn inni.

Aðalmálið er að allt nái að þorna og haldist þurt, best er að hafa heitann bílskúr, opna af og til út, opna allar hurðar, skottlok og setja rifu á gluggana, þá nær allt að þorna og þá eru möguleikar á ryði mun minni.
Að geyma bílinn úti, við sjáum nú bara hvernig flestir bílar líta út eftir langtímadvöl úti, kuldinn er fínn þar sem yfirleitt er lítið af raka í köldu lofti, en snjórinn einangrar alveg ágætlega, en íslenskur vetur er snjór og snjóbræðsla á víxl, svo þú getur ímyndað þér að eitthvað helst blautt að öllum líkindum í kringum snjó.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Inni eða úti?

#7
Hlynzi skrifaði:Auðvitað er betra að geyma bílinn inni.

Aðalmálið er að allt nái að þorna og haldist þurt, best er að hafa heitann bílskúr, opna af og til út, opna allar hurðar, skottlok og setja rifu á gluggana, þá nær allt að þorna og þá eru möguleikar á ryði mun minni.
Að geyma bílinn úti, við sjáum nú bara hvernig flestir bílar líta út eftir langtímadvöl úti, kuldinn er fínn þar sem yfirleitt er lítið af raka í köldu lofti, en snjórinn einangrar alveg ágætlega, en íslenskur vetur er snjór og snjóbræðsla á víxl, svo þú getur ímyndað þér að eitthvað helst blautt að öllum líkindum í kringum snjó.
Ekki hafa mjög heitann bílskúr. Ég man eftir því að hafa lesið einhverntímann að kjörhitastig fyrir bíl í geymslu væru milli 6 og 12 °c. Held nú samt að venjulegur stofuhiti ætti að vera í góðu lagi. Þar sem ég geymi bílinn minn er steady 14-18 °c, en því miður engnir opnanlegir gluggar. Því lofta ég reglulega út, þarf ekki meira en opna hurð í 10 mín. eða svo í senn.

En til að svara spurningunni, þá skaltu auðvitað geyma bílinn inni, og allra helst þar sem þú kemur honum inn í smá hita. Þú getur gert test á þessu sjálfur með því að láta nagla standa í óupphituðu húsnæði og svo aftur upphituðu húsnæði. Það ryðgar allt í óupphituðu húsnæði, þó það sé kanski lengur að ske en úti fyrir.
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004
cron