#2
fráMercedes-Benz
Sæll
Það þarf að lesa af ESP kerfinu til að átta sig á því hvað er að hrekkja þig þar, en ef þetta er stundum og stundum ekki í lagi grunar mig bremsuljósarofann, en getur verið margt annað.
Ef það er brotin plasthlífin fyrir framan v. framhjólið að þá er kominn raki í tengin á rúðupissdælunni og flautunni eða mögulega að þetta tvennt sé orðið ónýt af raka, en þetta hvorutveggja er algent fyrir framan hjólið þarna og þessar hlífar eru gjarnar á að brotna. Svo getur þetta verið eitthvað allt annað, en það þarf bara að skoða það. Stundum bila rúðupissdæurnar upp úr þurru, en ég á til dælu ef það hefur gerst. ESP-ið og flautan getur líka verið samtengd bilun ef að klukkuhringurinn undir stýrishjólinu er bilaður.
Þetta þarf bara að skoðast allt í samhengi.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
