Síða 1 af 1

benz c320 w203 smá vesen

Innsent: 12 Feb 2013, 10:53
frá Blöndal
Esp skynjari dettur inn og út þarf bara að láta lesa af bílnum eða ætli hann sé bara farinn . rúðupissið virkar ekki og heldur ekki flautan gæti þetta bara verið öryggi sem er farið ? :) óska eftir svörum

Re: benz c320 w203 smá vesen

Innsent: 13 Feb 2013, 13:42
frá Mercedes-Benz
Sæll

Það þarf að lesa af ESP kerfinu til að átta sig á því hvað er að hrekkja þig þar, en ef þetta er stundum og stundum ekki í lagi grunar mig bremsuljósarofann, en getur verið margt annað.

Ef það er brotin plasthlífin fyrir framan v. framhjólið að þá er kominn raki í tengin á rúðupissdælunni og flautunni eða mögulega að þetta tvennt sé orðið ónýt af raka, en þetta hvorutveggja er algent fyrir framan hjólið þarna og þessar hlífar eru gjarnar á að brotna. Svo getur þetta verið eitthvað allt annað, en það þarf bara að skoða það. Stundum bila rúðupissdæurnar upp úr þurru, en ég á til dælu ef það hefur gerst. ESP-ið og flautan getur líka verið samtengd bilun ef að klukkuhringurinn undir stýrishjólinu er bilaður.

Þetta þarf bara að skoðast allt í samhengi.

Re: benz c320 w203 smá vesen

Innsent: 13 Feb 2013, 15:13
frá Blöndal
Okei snilld ég læt þá bara lesa af bílnum og tala svo við þig ef mig vantar dæluna :)