Hóna slífar/ skipta um

#1
Það er komin skemmd í eina slífina hjá mér (m117 500se 1985)

Hvar fær maður nýjar slífar eða er hægt að hóna svona þegar það er komin skemmd, því þetta er ekki sprunga heldur eins og það sé brotið úr slífinni erfitt að útskýra...

Hljóta einhverjir hérna að hafa verið í einhverjum svona viðgerðum áður endilega deilið reynslu ykkar.

Kveðja Hjalti


W126 500se 85'
Ford Mustang GT 01'
Ford Econoline 79'
John Deere Model M 49'
John Deere Model M 50'
MF 135

Hjalti Þórhallsson

Re: Hóna slífar/ skipta um

#3
þú getur ekki hónað úr skemmd nema það séu mjög grunnar rispur og ef cylinderinn stenst mál.
Annaðhvort þarftu að láta bora alla cylindra út í yfirstærð eða láta slífreka. Það er oft hægt að slífreka bara einn cylinder, ég mæli með Egill vélaverkstæði í svoleiðis aðgerð.
Kv. Jakob

Subaru Impreza wrx