Síða 1 af 1

Hóna slífar/ skipta um

Innsent: 03 Jan 2013, 21:20
frá Hjalti
Það er komin skemmd í eina slífina hjá mér (m117 500se 1985)

Hvar fær maður nýjar slífar eða er hægt að hóna svona þegar það er komin skemmd, því þetta er ekki sprunga heldur eins og það sé brotið úr slífinni erfitt að útskýra...

Hljóta einhverjir hérna að hafa verið í einhverjum svona viðgerðum áður endilega deilið reynslu ykkar.

Kveðja Hjalti

Re: Hóna slífar/ skipta um

Innsent: 04 Jan 2013, 00:31
frá Gizmo
það er þetta með þúsund orð eða eina mynd....

skutlaðu einni mynd inn, þá er mun betra að átta sig á hvað er málið

Re: Hóna slífar/ skipta um

Innsent: 12 Jan 2013, 14:14
frá Lindemann
þú getur ekki hónað úr skemmd nema það séu mjög grunnar rispur og ef cylinderinn stenst mál.
Annaðhvort þarftu að láta bora alla cylindra út í yfirstærð eða láta slífreka. Það er oft hægt að slífreka bara einn cylinder, ég mæli með Egill vélaverkstæði í svoleiðis aðgerð.