Ég leita til ykkar í fróðleiksferð. Ég er með þreytta om636 vél og vantar aðra í staðinn. Pláss er af skornum skammti en þessi mótor er með uþb 50cm langa blokk en hægt væri að teyja sig aðeins lengra, jafnvel upp í 60cm. Þetta er í gömlum davis liðlétting.
Sjá frekari umræðu hér http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=31&t=14613" onclick="window.open(this.href);return false;
Spurningin er, hvaða mótor passar beint í staðinn, eða allavega að rassinn sé eins. Önnur smíðavinna er smámunir eins og mótorfestingar og púst/loftinntak eða aðrar breytingar við ísetningu.
Leitað er eftir nýrri mótor sem dettur í gang í frosti, auðvelt að nálgast varahluti og hestöflin meiga gjarnan vera fleiri.
Og auðvitað vera fáanlegur fyrir sem minnst fé líka
Vonandi hitti ég á mikla viskubrunna hér
Kveðja, Elmar Snorrason.