Síða 1 af 1

OM636 swap

Innsent: 13 Des 2012, 17:21
frá ElliOfur
Sælir Benz áhugamenn.

Ég leita til ykkar í fróðleiksferð. Ég er með þreytta om636 vél og vantar aðra í staðinn. Pláss er af skornum skammti en þessi mótor er með uþb 50cm langa blokk en hægt væri að teyja sig aðeins lengra, jafnvel upp í 60cm. Þetta er í gömlum davis liðlétting.
Sjá frekari umræðu hér http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=31&t=14613" onclick="window.open(this.href);return false;

Spurningin er, hvaða mótor passar beint í staðinn, eða allavega að rassinn sé eins. Önnur smíðavinna er smámunir eins og mótorfestingar og púst/loftinntak eða aðrar breytingar við ísetningu.

Leitað er eftir nýrri mótor sem dettur í gang í frosti, auðvelt að nálgast varahluti og hestöflin meiga gjarnan vera fleiri.
Og auðvitað vera fáanlegur fyrir sem minnst fé líka :)

Vonandi hitti ég á mikla viskubrunna hér :)

Kveðja, Elmar Snorrason.

Re: OM636 swap

Innsent: 13 Des 2012, 23:27
frá Þröstur
OM615
OM616
OM617
OM314

Þetta eru allt vélar sem geta komið til greina, OM314 er sú þeirra sem er minnst hrædd við kuldann en stærst um sig 82 hestöfl.

Re: OM636 swap

Innsent: 14 Des 2012, 09:45
frá Gizmo
held reyndar að dallurinn sykki með mann og mús væri OM314 komið þarna fyrir. Ansi hræddur um að ekkert nema OM636 sé með sama rass, arftaki þessarar vélar sem hét OM621 er komin með startarann á hægri hlið og er ekki það krafmeiri að það borgi sig að mixa hana í.

Spurning um að fara bara í OM616, sem er til í 2,4 lítrum um 70 hö og talsvert nýmóðins samanborið við þetta kuml sem þú ert með, ég veit um eina slíka í Keflavík sem kom úr sendibíl. Smíða svo bara millistykki á hana. Það er skotheldur mótor, var notaður í allt mögulegt í amk 2 áratugi.

Á sama stað er OM601, 4ra strokka, 2,3 litra 75 hö. Komin með álhedd og vökvalyftur. Þarf líka millistykki á rass. Ekki síðri mótor.....

Ég veit hugsanlega um svona OM636 mótor sem var moddaður við heyblásara fyrir um 30 árum og hefur staðið úti í amk 25ár. Ef þú vilt þá skal ég athuga með hann.

Re: OM636 swap

Innsent: 14 Des 2012, 16:27
frá ElliOfur
Ég þakka svörin.

Ég er búinn að fá furðu mörg tilboð um fína mótora, og núna er ég heitastur fyrir isuzu c240, svona fyrst það þarf hvort sem er að smíða þetta saman. Hann er bæði ódýr og lítið keyrður og nettur um sig og hæfilega kraftmikill, eða tæp 60 hestöfl (þessi om636 er í kringum 40 hestöflin).
Þetta má heldur ekki vera of kraftmikið þó það komist fyrir uppá að keyra ekki allt dælukerfið í köku :)

Ég póstaði aðallega hérna inn til athuga hvort ekki væri eitthvað til sem væri hægt að bolta beint á.

Takk aftur :)

Re: OM636 swap

Innsent: 19 Des 2012, 19:29
frá Mercedes-Benz
Fornbílaklúbbur Íslands á eina 621 vél og eina nýja 621 blokk með nýjum svefarás, stimplum og stöngum (short block) sem fæst líklega saman fyrir sanngjrant verð. Held að þeir eigi líka nýtt pakkningasett til að koma þessu saman líka. ;)

Re: OM636 swap

Innsent: 19 Des 2012, 19:41
frá ElliOfur
Takk fyrir það, en tekin hefur verið ákvörðun um að fara í isuzu c240 sem við erum búinir að finna á norðurlandinu, keyrða 1610tíma. Hann fæst á mjög fínu verði en líklega þarf að mixa þetta ofaní, en flóknari verk hafa svosem verið framkvæmd heima í skúr hjá okkur feðgnum :)

Re: OM636 swap

Innsent: 03 Apr 2014, 16:35
frá ElliOfur
Nú er swappið komið á fulla ferð, isuzu c240 nánast kominn í (eitt tannhjól í fræsingu, annað klárt) og nú fæst 636 gefins gegn því að vera sóttur uppí Borgarfjörð.

http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=50&t=14613" onclick="window.open(this.href);return false;
Hér er linkur á jeppaspjallið þar sem meiri upplýsingar eru um þessa græju og einhverjar myndir. Þessi þráður verður líka uppfærður þegar allt er klárt á næstu vikum.

Endilega látiði vini og kunningja vita sem gætu notað þessa vél, þetta er ónýtt rusl fyrir okkur feðgum en gæti verið algjört gull í augum einhvers sem vantar svona, þetta var víst algengt mix í rússum og einhverjum fleiri eðaltækjum hér í gamla daga.

Upplýsingar í síma 8666443

Re: OM636 swap

Innsent: 04 Jan 2015, 21:58
frá ElliOfur
OM636 er ennþá til og fæst algjörlega gefins en fer bráðlega í gáminn ef enginn vill hana.