Rúða bílstjóramegin orðin klikkuð. 300D w124 '92

#1
Rúðan bílstjóramegin er semsagt komin með sjálfstæðan vilja og fer ýmist upp eða niður eftir eigin hentisemi, sem er ekkert grín eins og veðrið er búið að vera ;)
Það er sem eykur á leiðindin er að það er sennilega brotin tönn í upphalara (skipti samt um hann í sumar) þannig að hún snuðar alltaf i toppstöðu og lokast ekki alveg nema með smá aðstoð.

Það sem ég er að velta fyrir mér er hvort að þetta sé algengt vandamál sem hægt að að laga á fljótlegan og auðveldan hátt, eða hvort þetta sé alveg dauðarokks bílarafmagnsvesen sem er ekki fyrir hvern sem er að finna og laga.


-Reynir


Re: Rúða bílstjóramegin orðin klikkuð. 300D w124 '92

#2
Prófaðu að rífa rofann úr sambandi (svissa honum fyrir rofann farþegameginn) og sjá hvort rúðan hætti þessu ekki þá. (þarft að taka upp viðinn í miðjunni, skrúfa undir mottunni og viðarspjaldinu smellt upp)
Ef það er ekki málið er möguleiki á að hinn svonefndi comfort controller (stýribox fyrir samlæsingar, rúður og fl.) sem er í sumum bílum, staðsett bílstjóra megin undir aftursætinu sé að hrekkja.

Tannkransinn á rúðuupphalaranum vill því miður alltaf skemmast í þessum bílum, efstu 1-2-3 tennurnar ryðga og brotna og þá gerist nákvæmlega það sem þú lýsir.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Rúða bílstjóramegin orðin klikkuð. 300D w124 '92

#3
Það er búið að vera mikill raki í bílnum í vetur þannig að ég kíkti strax á comfort controller-inn undir sætinu og BINGO, allt á floti (eða hér um bil). Heyrði líka brjálæðislega smelli og klikk í boxinu þegar ég komst með bílinn inn í hús þar sem var ró og næði. Grunar að það leki inn um afturrúðu sem ég er búinn að vera fresta að skipta um. Svona fær maður þetta í hausinn :| Tók öryggið fyrir rúðurnar úr á meðan málið fer fyrir nefnd.
Eru einhverjar líkur á að þetta lagist ef að bíllinn fær að þorna og komið í veg fyrir lekann? Eða ætli þetta sýstem sé toast?

Re: Rúða bílstjóramegin orðin klikkuð. 300D w124 '92

#4
Blob skrifaði:Það er búið að vera mikill raki í bílnum í vetur þannig að ég kíkti strax á comfort controller-inn undir sætinu og BINGO, allt á floti (eða hér um bil). Heyrði líka brjálæðislega smelli og klikk í boxinu þegar ég komst með bílinn inn í hús þar sem var ró og næði. Grunar að það leki inn um afturrúðu sem ég er búinn að vera fresta að skipta um. Svona fær maður þetta í hausinn :| Tók öryggið fyrir rúðurnar úr á meðan málið fer fyrir nefnd.
Eru einhverjar líkur á að þetta lagist ef að bíllinn fær að þorna og komið í veg fyrir lekann? Eða ætli þetta sýstem sé toast?
Það getur verið merkilegt hvað svona dót þolir bleytuna (eftir þurrkun), ófáir GSM símarnir sem hafa lent í þvottavél og rafhlaðan hefur eyðilagst, en síminn í góðu lagi.

Svo það er bara um að gera að prófa þetta þegar það er vel þurrt, efast um að það skemmi mikið meira. Ef bíllinn er fullur af raka skalltu einnig skoða drain tappa í skottinu (rífur upp sitthvora hliðarklæðninguna og í "hólfinu", semsagt í miðjunni aftan við hjólskálina, ca. 5 cm frá hjólskálinni báðum megin, og einn undir varadekkinu (þetta eru gúmmítappar með 3 götum) Það er ekki óvitlaust að skoða þá og hreinsa, þá losnar maður við sundlaugina úr skottinu í það minnsta.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is