Blob skrifaði:Það er búið að vera mikill raki í bílnum í vetur þannig að ég kíkti strax á comfort controller-inn undir sætinu og BINGO, allt á floti (eða hér um bil). Heyrði líka brjálæðislega smelli og klikk í boxinu þegar ég komst með bílinn inn í hús þar sem var ró og næði. Grunar að það leki inn um afturrúðu sem ég er búinn að vera fresta að skipta um. Svona fær maður þetta í hausinn

Tók öryggið fyrir rúðurnar úr á meðan málið fer fyrir nefnd.
Eru einhverjar líkur á að þetta lagist ef að bíllinn fær að þorna og komið í veg fyrir lekann? Eða ætli þetta sýstem sé toast?
Það getur verið merkilegt hvað svona dót þolir bleytuna (eftir þurrkun), ófáir GSM símarnir sem hafa lent í þvottavél og rafhlaðan hefur eyðilagst, en síminn í góðu lagi.
Svo það er bara um að gera að prófa þetta þegar það er vel þurrt, efast um að það skemmi mikið meira. Ef bíllinn er fullur af raka skalltu einnig skoða drain tappa í skottinu (rífur upp sitthvora hliðarklæðninguna og í "hólfinu", semsagt í miðjunni aftan við hjólskálina, ca. 5 cm frá hjólskálinni báðum megin, og einn undir varadekkinu (þetta eru gúmmítappar með 3 götum) Það er ekki óvitlaust að skoða þá og hreinsa, þá losnar maður við sundlaugina úr skottinu í það minnsta.