300ce 93' fer ekki í gang

#1
Sælir,

er í vanda með bílinn hjá mér, hann var búinn að vera fínn þar til hann stóð í um 3 vikur hjá mér um daginn, eftir það tekur hann ekkert við sér.... ég heyri í bensíndælunni, hann gefur neista en mér finnst neistinn reyndar vera daufur... ég er búinn að prufa að sjússa bensíni á hann en hann tekur ekkert við sér... ég kíkti í kveikjulokið ef þetta væri raki en þar var allt þurrt og leit nokkuð vel út.

einhverjar hugmyndir?


Guðmundur Kristinn Guðmundsson

Mercedes Benz 300 ce-24v sportline 1993' (C124)

Re: 300ce 93' fer ekki í gang

#3
Er vélin að starta sér eða hvað ?

Ef hann rétt byrjar að taka við sér og svo kemur bara klikk klikk klikk hljóð er of lítið rafmagn á honum.

Hinsvegar ef hann er með fjarstýrðum samlæsingum orginal. Farðu þá út og læstu honum (allar hurðar lokaðar) og aflæstu svo. Annars hefur eitthvað verið um immobilizer bilanir (Startvörn, þjófavörn). Þá fer allt eðlilega í gang, öll ljós í mælaborðinu kvikna en þegar maður fer á síðasta hakið gerist ekkert.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is