Síða 1 af 1

300ce 93' fer ekki í gang

Innsent: 07 Jan 2012, 16:36
frá Gummi Kei
Sælir,

er í vanda með bílinn hjá mér, hann var búinn að vera fínn þar til hann stóð í um 3 vikur hjá mér um daginn, eftir það tekur hann ekkert við sér.... ég heyri í bensíndælunni, hann gefur neista en mér finnst neistinn reyndar vera daufur... ég er búinn að prufa að sjússa bensíni á hann en hann tekur ekkert við sér... ég kíkti í kveikjulokið ef þetta væri raki en þar var allt þurrt og leit nokkuð vel út.

einhverjar hugmyndir?

Re: 300ce 93' fer ekki í gang

Innsent: 09 Jan 2012, 15:27
frá Gummi Kei
er enginn með neina fjarstæðukennda hugmynd einusinni? ég þarf að fara að koma þessari blessuðu bifreið af stað :P

Re: 300ce 93' fer ekki í gang

Innsent: 22 Jan 2012, 14:19
frá Hlynzi
Er vélin að starta sér eða hvað ?

Ef hann rétt byrjar að taka við sér og svo kemur bara klikk klikk klikk hljóð er of lítið rafmagn á honum.

Hinsvegar ef hann er með fjarstýrðum samlæsingum orginal. Farðu þá út og læstu honum (allar hurðar lokaðar) og aflæstu svo. Annars hefur eitthvað verið um immobilizer bilanir (Startvörn, þjófavörn). Þá fer allt eðlilega í gang, öll ljós í mælaborðinu kvikna en þegar maður fer á síðasta hakið gerist ekkert.

Re: 300ce 93' fer ekki í gang

Innsent: 22 Jan 2012, 14:31
frá Gummi Kei
heyrðu þetta var raki einhversstaðar, ég kom honum inn í hita og þá jafnaði hann sig ;) en takk fyrir!