Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

#13
AM skrifaði:Er hann bara erfiður gang kaldur ? eða er mótorinn með einhver leiðindi þegar hann er kominn í gang ? undir álagi ?
hann er erfiður í gang, en ég prufaði áðan að starta bílnum í -6 gráðum. Bíllinn stökk í gang en drap reyndar á sér (fór í of lága snúninga). Fór svo aftur í gang með pínu þvingum og þá fór ég að pæla...

Þegar ég er í vinnunni legg ég honum í pínu brekku og nefið á honum hallar niður. Þegar ég kem úr vinnunni er ég allt að 20 mín að koma honum í gang (búinn að taka strætó síðan það gerðist) en ef ég geymi hann heima er hann á jafnsléttu þá poppar hann alltaf í gang.. GÆTI það verið að trufla eitthvað ?
190 E beauty

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

#15
Það er ekkert sem að heitir smá af ísvara sem að virkar... ef að það eru 20lítrar eða meira myndi ég gusa eins og 0,5-1líter af læknaspritti (Ísóprópanol, sama og þú ert að kaupa dýrum dómum á bensínstöðinni, nema bara ódýrara) í tankinn, keyra góðan rúnt... fara svo á bensínstöð og fylla tankinn þar..
Viktor Agnar Falk Guðmundsson
Sími:8462367
BMW E46 320i - MY01 - Schwarz II - Daily
BMW E36 3**i - MY00 - Cosmicschwarz - ///M
BMW E38 750i - MY96 - Orientblau - Induvidual
Dodge Ram Cummins 5.9 12v - MY96 - P-7100

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

#16
Angelic0- skrifaði:Það er ekkert sem að heitir smá af ísvara sem að virkar... ef að það eru 20lítrar eða meira myndi ég gusa eins og 0,5-1líter af læknaspritti (Ísóprópanol, sama og þú ert að kaupa dýrum dómum á bensínstöðinni, nema bara ódýrara) í tankinn, keyra góðan rúnt... fara svo á bensínstöð og fylla tankinn þar..
búinn að sulla tæpum 2 brúsum af ísvara, fylla tankinn og rúntaði um 20 km.. hann var samt helvíti erfiður í gang í dag :l alltaf næstum því að drepa á sér og eitthvað

:realmad:
190 E beauty

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

#17
skánaði hann eitthvað :?:

Ég mæli með að þú setjir meira magn af Ísvara/Spritti...

Ef að hann er að skána þá er greinilega mikill raki í tanknum...

Ég hef sett alveg 2 lítra af spritti í 30lítra af bensíni mest til þess að losna við svona raka án þess að það skapi nein vandamál...
Viktor Agnar Falk Guðmundsson
Sími:8462367
BMW E46 320i - MY01 - Schwarz II - Daily
BMW E36 3**i - MY00 - Cosmicschwarz - ///M
BMW E38 750i - MY96 - Orientblau - Induvidual
Dodge Ram Cummins 5.9 12v - MY96 - P-7100

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

#20
Sko, hann hefur ekki skánað mikið en ég kem honum í gang í svona þriðju tilraun, í hvert skipti. En er búinn að komast að því að ef ég er að starta og hann snýr og snýr og snýr vélinni en enginn neysti kemur þá virkar að botna bensíngjöfina í 1 sec þá kveikir hann á sér.
Eftir að ég tek af stað þá er hann tregur í smá stund með snúningana og er það næstu mínútuna svo er hann góður.. finnst það jú líklegt að bensíndælan sé að stríða mér, ég heyri samt í henni dæla þegar ég svissa á bílinn en Bensínsían mín er um hálfs árs gömul.

þarf kansk að tjekka á gúmmíuni, aldrei að vita
190 E beauty
cron