w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!!

#1
Sælir, núna bráðvantar mig hjálp.. ég er með 190E 2.0L bensín bíl og hann er leiðinlegur í kulda. Veit ekki hvort það sé eitthvað tilfinningarlegt hjá greyjinu en þegar hitinn er undir 4 gráðum þá vill hann stundum ekki fara í gang.

Byrjaði fyrir um 2 mánuðum þegar það kom pínu frost, þá fór hann ekki í gang. Vélin snýst þegar ég svissa á en það kemur aldrei "neystinn" til að bíllin hrökkvi í gang en ef ég reyni aftur og aftur í svona 5 mínútur fer hann í gang á hrikalega lágum snúningum (300 - 600 rpm) og deyr eftir svona 5-10 sec. Ef ég snerti bensíngjöfina meðan hann er í svona lágum snúningum deyr hann samstundis en ef ég geymi bílinn í bílskúrnum í einn dag fer hann í gang nó problemmó. Er búinn að fara með hann þrisvar í viðgerð hjá BílaDoktor en án árangurs :( Þeir eru búnir að skipta um eftirfarandi :
-Kerti
-Kertaþræði
-Hamar
-Kol
-Yfirspennu Relay
-Hitaskynjara fyrir Cold Start Valve (CSV)
-Ég skipti um CSV sem breytti engu

(farið að kosta mig góða summu :l )

Batterýs geymirinn er mjög nýlegur og allar tengingar eru í topp standi.
Þið sem eruð klárir á benza endilega komið með ábendingar, er allveg stopp núna !!!

Kv. Óli


190 E beauty
cron