Síða 1 af 3

w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!!

Innsent: 28 Nóv 2011, 10:12
frá olafurf
Sælir, núna bráðvantar mig hjálp.. ég er með 190E 2.0L bensín bíl og hann er leiðinlegur í kulda. Veit ekki hvort það sé eitthvað tilfinningarlegt hjá greyjinu en þegar hitinn er undir 4 gráðum þá vill hann stundum ekki fara í gang.

Byrjaði fyrir um 2 mánuðum þegar það kom pínu frost, þá fór hann ekki í gang. Vélin snýst þegar ég svissa á en það kemur aldrei "neystinn" til að bíllin hrökkvi í gang en ef ég reyni aftur og aftur í svona 5 mínútur fer hann í gang á hrikalega lágum snúningum (300 - 600 rpm) og deyr eftir svona 5-10 sec. Ef ég snerti bensíngjöfina meðan hann er í svona lágum snúningum deyr hann samstundis en ef ég geymi bílinn í bílskúrnum í einn dag fer hann í gang nó problemmó. Er búinn að fara með hann þrisvar í viðgerð hjá BílaDoktor en án árangurs :( Þeir eru búnir að skipta um eftirfarandi :
-Kerti
-Kertaþræði
-Hamar
-Kol
-Yfirspennu Relay
-Hitaskynjara fyrir Cold Start Valve (CSV)
-Ég skipti um CSV sem breytti engu

(farið að kosta mig góða summu :l )

Batterýs geymirinn er mjög nýlegur og allar tengingar eru í topp standi.
Þið sem eruð klárir á benza endilega komið með ábendingar, er allveg stopp núna !!!

Kv. Óli

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 28 Nóv 2011, 10:26
frá hjalti.g
Dettur í hug bensínsía, ef að það er raki í bensíninu þá getur það frosið ef hitastigið fer nógu mikið niður.
Skipta um síuna og setja á hann ísvara :? :)

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 28 Nóv 2011, 10:44
frá olafurf
getur það gerst ef við miðum við að ég skipti um síu í sumar :o ?

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 28 Nóv 2011, 10:58
frá hjalti.g
Það getur verið þá nóg að setja á hann ísvara í bensínið og sjá hvort það virkar, þarf ekki mikinn raka í bensíninu til að hann harðneiti í frosti :wink:

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 28 Nóv 2011, 13:57
frá olafurf
Prófa það á eftir, vona það besta :D

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 28 Nóv 2011, 15:36
frá JBV
Þegar þú ert búinn koma bílnum í lag, þá væri gaman að þú létir sjá þig og Benzinn samkomu í kvöld. Skilst að þetta sé eitt flottasta W201 eintak á landinu. :D

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 28 Nóv 2011, 16:40
frá Gunnar Örn
Kaldstartspíss?
[img]http://i206.photobucket.com/albums/bb2/ ... 030450.jpg[/img]

spíssinn með bláa plögginu.

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 28 Nóv 2011, 21:33
frá olafurf
Gunnar Örn skrifaði:Kaldstartspíss?
[img]http://i206.photobucket.com/albums/bb2/ ... 030450.jpg[/img]

spíssinn með bláa plögginu.
það er Cold Start Valve, var búinn að skipta um það :/

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 29 Nóv 2011, 09:32
frá olafurf
hjalti.g skrifaði:Það getur verið þá nóg að setja á hann ísvara í bensínið og sjá hvort það virkar, þarf ekki mikinn raka í bensíninu til að hann harðneiti í frosti :wink:
Já það er ekkert annað :tumbsup: , Ég held ég verði að mæta á næstu samkomu þar sem mig hefur nú alltaf langað til að mæta :lol:

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 29 Nóv 2011, 09:40
frá hjalti.g
Var þetta semsagt að virka :?: