Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#41
Það er kannski réttast að varpa fram að þessir náungar eru/voru ekki að fullyrða að fá 30% meiri orku heldur 30% meiri nýtni út úr eldsneytinu eftir að kerfið hefur verið notað í smá tíma vegna hreinsunar á vélinni. Þetta eru náttúrulega mjög ýktar tölur. Hinsvegar hefur verið sýnt fram á að þetta veldur sneggri bruna, þ.e.a.s. fullum bruna sem leiðir af sér 0 carbon-monoxide (Coltvíoxíð?). Hinsvegar er bruninn heitari en ég veit ekki hvort það sé nógu mikið til að skemma eitthvað. Við þennan hreinni útblástur halda þeir fram að vélin bæði hreinsist og haldist hreinni og endist því lengur og eyði minna.

Helsta vandamálið hinsvegar er að þetta ruglar tölvuna algörlega því nú skilar súrefnisskynjarinn ekki þeim niðurstöðum sem hún býst við því að súrefnisskynjarinn er að gefa boð um að blandan sé of þunn og því byrjar tölvan að aðlaga blönduna og eykur eldsneyti á móti súrefni og þ.a.l. er blandan ekki lengur rétt (1:14,7). Þetta veldur að sjálfsögðu meiri eldsneytisnotkun.

Þeir sem eru að selja þennan búnað hafa "leyst" þetta vandamál með að útbúa rofa inni í bílnum sem gerir þér kleyft að kveikja á búnaðnum ásamt einhverskonar kubb sem settur er á milli súrefnisskynjara og tölvunnar en ég veit ekki betur en að þessi kubbur geri neitt annað en að stöðva boðin frá súrefnisskynjaranum og gefa boð um fyrirfram ákveðna blöndu. Það gerir það að verkum að tölvan getur ekki aðlagað sig lengur að aðstæðum og því verður nýtnin verri en þegar allir skynjarar voru að virka. Aðrar útgáfur einfaldlega rjúfa straum milli tölvu og súrefnisskynjara þannig að kortlagningin í tölvunni er notuð.

Af þessum ástæðum fullyrða sumir hérna að þetta virkar nánast eingöngu á blöndungsvélum eða bílum með ónýtan súrefnisskynjara. Samkvæmt mínum skilningi þá myndi ég halda að það væri rétt athugað. Þ.e.a.s. í tilfelli blöndungsbíla myndi þetta gefa hreinni útblástur en engan, eða allavega hverfandi, auka kraft. Í tilfelli bíla með beina inspítingu þá myndi ég halda að kaup á súrefnisskynjara myndi gefa mikið betri raun.

Svo er annað í þessu, með hraðari bruna verður í staðinn til nitrogen-oxide sem einnig er mengun. Mér þætti gaman að vita hvort það hafi verið tekið inn í þessar mengunarmælingar!

Þær staðhæfingar um nýtni og bruna tek ég úr rannsókn sem NASA gerði á áttunda áratugnum (1977) en upplýsingar um þá rannsókn má finna á síðunni hjá þeim sem eru að selja þennan búnað:

http://tezpower.com/technical_info_nasa_tech_note


Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#42
Áfram heldur þetta rugl hér á síðunni. Vetnisbullið er algjört plat og hananú! Haldið þið að bílaframleiðendur eyði mörg hundruð milljörðum í þróun bíla án þess að nýta sér alla þá tækni sem fáanleg er? Ef þessi tækni virkaði myndu bílaframleiðendur nota hana. Að setja einhvern kubb í tölvustýrðan bíl sem á að slökkva á hluta tölvubúnaðarins hljómar eins og hver annar brandari.

Lesið endilega greinina frá NASA sem birt er á síðunni hjá TEZ. Þá sést að í tilraun Nasa var notað vetni af kút annars vegar og hins vegar vetni sem búið var til úr metanóli. Þetta er sem sagt utanaðkomandi orka, ekki orka úr rafgeymi bílsins. ,,Vísindamanninn'' D. Allan Sterling er hvergi að finna hjá Idaho-háskólanum. Ef þið leitið á netinu kemur hins vegar í ljós að þetta er þekktur bragðarefur og falsari.

Það er tómt mál að tala um eitthvað sem heitir hreinni bruni, heitari bruni eða annað slíkt í tölvustýrðri nútímavél. Hún nýtir þetta sóðalega eldsneyti sem heitir bensín eða díselolía eins vel og mögulegt er. Hættið að hugsa um þetta vetnisbull! Nema þið viljið endilega láta plata út úr ykkur peninga.

Og að lokum: Nú er búið að ræða þetta hér í margar vikur. Af hverju kemur enginn fram sem getur sýnt fram á að búnaðurinn geri gagn? Svarið er einfalt: Af því að hann virkar ekki. En af hverju kemur þá enginn fram sem hefur keypt búnaðinn og er bálreiður yfir því að hann skuli ekki virka? Þar er svarið líka einfalt: Af því að menn vilja ekki láta spyrjast um sig að þeir hafi verið gabbaðir.

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#44
peturh skrifaði:Áfram heldur þetta rugl hér á síðunni. Vetnisbullið er algjört plat og hananú! Haldið þið að bílaframleiðendur eyði mörg hundruð milljörðum í þróun bíla án þess að nýta sér alla þá tækni sem fáanleg er? Ef þessi tækni virkaði myndu bílaframleiðendur nota hana. Að setja einhvern kubb í tölvustýrðan bíl sem á að slökkva á hluta tölvubúnaðarins hljómar eins og hver annar brandari.

Lesið endilega greinina frá NASA sem birt er á síðunni hjá TEZ. Þá sést að í tilraun Nasa var notað vetni af kút annars vegar og hins vegar vetni sem búið var til úr metanóli. Þetta er sem sagt utanaðkomandi orka, ekki orka úr rafgeymi bílsins. ,,Vísindamanninn'' D. Allan Sterling er hvergi að finna hjá Idaho-háskólanum. Ef þið leitið á netinu kemur hins vegar í ljós að þetta er þekktur bragðarefur og falsari.

Það er tómt mál að tala um eitthvað sem heitir hreinni bruni, heitari bruni eða annað slíkt í tölvustýrðri nútímavél. Hún nýtir þetta sóðalega eldsneyti sem heitir bensín eða díselolía eins vel og mögulegt er. Hættið að hugsa um þetta vetnisbull! Nema þið viljið endilega láta plata út úr ykkur peninga.

Og að lokum: Nú er búið að ræða þetta hér í margar vikur. Af hverju kemur enginn fram sem getur sýnt fram á að búnaðurinn geri gagn? Svarið er einfalt: Af því að hann virkar ekki. En af hverju kemur þá enginn fram sem hefur keypt búnaðinn og er bálreiður yfir því að hann skuli ekki virka? Þar er svarið líka einfalt: Af því að menn vilja ekki láta spyrjast um sig að þeir hafi verið gabbaðir.

Ég hef kannski ekki verið nógu skýr í fyrra innleggi en yfirbragð skriftanna var allt á móti búnaðinum. Þegar ég sagði: "Þeir sem eru að selja þennan búnað hafa "leyst" þetta vandamál," þá var ég að meina að vandamálið væri alls ekki leyst því þetta gerir ekkert annað en að fela það. Gæsalappirnar áttu að gefa það til kynna. Ég man að gera mig greinilegri næst.

Hinsvegar tel ég að það sé ávinningur á að ræða þetta mál svo að þeir sem ekki hafa þegar kynnt sér þetta fái raunveruleg rök sem sýna fram á að búnaðurinn virkar ekki frekar en "nei þetta er rugl og svindl." athugasemdir. Þá eru einnig líkur á að þeir læri eitthvað í leiðinni af þeim sem hafa kynnt sér málið í þaula.

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#45
joolli skrifaði: Ég hef kannski ekki verið nógu skýr í fyrra innleggi en yfirbragð skriftanna var allt á móti búnaðinum. Þegar ég sagði: "Þeir sem eru að selja þennan búnað hafa "leyst" þetta vandamál," þá var ég að meina að vandamálið væri alls ekki leyst því þetta gerir ekkert annað en að fela það. Gæsalappirnar áttu að gefa það til kynna. Ég man að gera mig greinilegri næst.
Hæðni skilar sér því miður illa í gegnum netið :twisted:
joolli skrifaði: Hinsvegar tel ég að það sé ávinningur á að ræða þetta mál svo að þeir sem ekki hafa þegar kynnt sér þetta fái raunveruleg rök sem sýna fram á að búnaðurinn virkar ekki frekar en "nei þetta er rugl og svindl." athugasemdir. Þá eru einnig líkur á að þeir læri eitthvað í leiðinni af þeim sem hafa kynnt sér málið í þaula.
Sammála :tumbsup2:
Benedikt Hans Rúnarsson
cron