Þessi hugmynd hljómar rosalega vel, en þetta virkar ekki. Orkan sem fer í að framleiða vetnið er meiri en orkan sem vetnið gefur aftur af sér við bruna í vélinni. Þessi orka kemur upprunalega frá bensíninu, brennur í vélinni, fer þaðan í gegnum alternator og þaðan í vetnisframleiðsluna
Segjum að alternatorinn afkasti 100W inn á þennan búnað. Alternatorinn fær orkuna frá vél sem hefur 30% nýtni, þannig að það þarf 333W afl í formi bensíns til þess að framleiða þessa orku. (aukið álag á alternator tekur afl frá vélinni).
Svo hefur alternatorinn 90% nýtni og vetnisbúnaðurinn hefur kanski 90% nýtni (vatnið hitnar) Þannig framleiðast um 81W af orku í formi vetnis. Þessi orka fer síðan inn á vélina og brennur alveg örugglega mjög vel, en hún skilar aldrei þessum 333W sem hún tekur frá vélinni.
Ef einhver vill endilega prufa þennan búnað, þá er talsvert ódýrara að kaupa þetta t.d. á ebay, eða búa þetta til sjálfur úr sultukrukku og vír. Þetta er alls ekki nýr búnaður þetta er búið að vera til sölu í ameríku í svona 10 ár.
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/HYDROGEN ... ccessories" onclick="window.open(this.href);return false;
Góðar stundir.
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k
Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k
Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu