Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#31
olafur_ skrifaði:Einn vinur minn spurði mig nú hvort ég hefði heyrt um þetta og ég sagðist hafa gert það hérna inná.
Hann sagði að þessi umræða væri líka á http://www.live2cruize.com" onclick="window.open(this.href);return false; og að þetta væri algjör vitleysa og eins og einn sagði hérna inná búið að vera til í bandaríkjunum.
Hann sagðist líka hafa lesið eitthvað og þetta virki engan vegin þegar kemur að því að bíllinn eyði minna og skili meiri krafti en minntist ekkert á hvort það gerði eitthvað sambandið við mengun og það hefðu nú nokkrir bandaríkjamenn verið kærðir fyrir þetta.
Þá voru þeir búnir að borga fólki til að segja að þetta virkaði og þannig.
Menn sem rannsökuðu málið hittu fólkið sem þeir voru búnir að borga fyrir að segja að þetta virkaði og hver einasta manneskja sagði að þetta virkaði nákvæmlega ekki neitt og voru allir búnir að rífa þetta úr bílnum sínum. Bara ein manneskja svaraði ekki, og kom nú í ljós að það væri eiginkona hans :D .
En þetta er náttúrulega bara það sem ég hef heyrt um þetta frá honum, hlakkaði sjálfum alveg skelfilega til að fá að prufa þetta en varð fyrir svolitlum vonbrigðum þegar ég heyrði þetta :(
Eini kosturinn sem ég sé við þetta er að lækka mengun á bílnum, miðað við hvað bifreiðagjöldin taka viðmið af henni ætti maður að geta fengið endurútreiknuð bifreiðagjöld og kannski komist í eins og fyrir co2 skattinn.


Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#32
Þetta er blekking! Margir hafa sett svona búnað á markað úti í heimi en alltaf er sýnt fram á að þetta sé blöff. Aflfræði Newtons segir okkur að ekki sé hægt að fá meiri orku út en sett er inn. Það er heila málið. Ef þetta virkaði væri þetta í öllum bílum, rétt eins og bein innspýting, tölvustýring og annað sem bætt hefur bílvélar undanfarna áratugi. Enginn bílaframleiðandi setur þetta á vélarnar sínar og það segir allt sem segja þarf. Látið ekki blekkjast! Einu bílarnir sem þetta gæti hugsanlega gert gagn í eru gamlir bílar með blöndungi því slíkir bílar brenna eldsneytinu oft illa. Vetnið getur hugsanlega bætt brennsluna meira en sem nemur þeirri orku sem fer í að búa til vetnið en ég hef samt engar vísindalegar niðurstöður sem styðja það. Nánari umfjöllun í útvarpsþættinum Tilraunaglasið á Rás 1 11. mars 2011: http://www.ruv.is/tilraunaglasid" onclick="window.open(this.href);return false; .

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#33
En hvað með þá orku sem verður til þegar menn bremsa? Sú orka er t.d. nýtt í að hlaða inn á rafbíla og eins þegar bíllinn rennur niður brekku. Volvo er ef ég man rétt að prófa slíkan búnað í sína bíla, þ.e. að hlaða bílinn þegar hann bremsar. Það þarf ekki öll orka að koma frá vélinni sjálfri til að sinna orkuþörfinni þó svo það sé svo í þessu tilviki eins og auglýst var á mbl.is.
Eins hafa menn nú keyrt heilan helling á sólarorkunni einni en á heldur óvenjulegum ökutækjum.

Getið þið svo rétt ímyndað ykkur hvað olíuframleiðendur eru tilbúnir í að eyða í að rýra alla umfjöllun um aðra möguleika í eldsneyti á bíla?

Ef það kostar ekki nema ca 7000kr. að útbúa svona fyrir bílinn... þá sé ég ekkert að því að prófa.

Ég er samt ekki að gefa í skyn að þetta vetnisdæmi virki. Vildi bara benda á að þetta er nokkuð sem er þess virði að skoða... sem og annað sem minnkar eyðslu.

Það eitt að mengun minnki væri jafnvel stór kostur.

Gaman að þessu :D
Merceds Benz 230E árg. 1989

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#34
Fyrsti benzinn rúllaði af stað fyrir 125 árum. Nú auglýsa menn grimmt að fyrst Chevrolttinn hafi tekið af stað fyrir 100 árum.
Þetta þýðir í raun að bílar og bílvélar eru hundgömul fyrirbæri.
Fjölventlavélar, forþjöppur og toppventlar komu fyrst á markað fyrir meira en mannsaldri.
Það eru áratugir síðan menn fóru að fikta sig áfram við að nota olíuverk til að sprauta bensíni inná bensínvélar.
Öll þróun sem einhverjur skiptir í bílvélum sl 30 ár snýst um eldsneytiskerfið og í það hefur farið gríðarleg þróun. Þetta HHO trikk hefur verið þekkt í áratugi en hefur aldrei verið notað af vélarframleiðendum og engar hlutlausar rannsóknir hafa sýnt fram á raunverulega virkni.
Í dag eru eldsneytiskerfi bensín og dísilvéla að verða nauðalík og Benz og Fiat eru á góðri leið með að framleiða sk Dies-Otto vélar sem eru nk. dísilvélar með kerti sem keyra á bensíni og ýmist notuð sjálsvíkveikja eða kerti. Þetta kostar formúu og ef HHO væri til e-h gagns þá væru helstu framleiðendur fyrir löngu farnir að bjóða þetta í bílum ljósavélum ofl ofl ofl.

Minni samt á að þetta er hugsanlega að hjálpa gömlum vélum með mjög lélega blöndunga eða spíssa og getur hjálpað til að kveikja í eldsneytisdropum sem eru allt of stórir til að ná að brenna sómasamlega. En þetta er gagnslaust í vélar sem eru í lagi og ekki með blöndung.

Það er mikið betri fjárfesting að fara á vistakstursnámskeið til að minnka eldsneytisnotkun, -í stað þess að reyna að endurhæfa vélina heim í bílskúr.

Ástæðan; heilinn í flestum ökumönnum hefur mikið meiri getu til bætingar en gömul bílvél

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#35
Margir bílar nota hemlunarorkuna til að drýgja eldsneytið. Í venjulegum bíl þó hefur varla mikið upp á sig að framleiða rafmagn úr hemlunarorkunni því að ekkert er með þetta aukarafmagn að gera. Í tvinnbíl er hins vegar hægt að nota orkuna til að drífa bílinn áfram.Í öllum tvinnbílum eins og Toyota Prius er hemlunarorka notuð til að hlaða rafgeyma og í öllum nýjum rafbílum er slíkur búnaður.

Þetta gerir reyndar rafbíla mjög skemmtilega í akstri því að ekki þarf að gera neitt nema sleppa aflgjöfinni og þá hægir bíllinn á sér. Tilfinningin verður því eins og að aka formúlu-1 bíl því rafbílar taka mjög vel við sér þegar þeim er gefið inn.

Ég veit að í mörgum nýjum strætisvögnum og kannski fleiri stórum bílum er sjálfskiptingin forrituð þannig að þegar hemlað er skiptir bíllinn niður. Þannig er vélin látin hjálpa til við að bremsa sem sparar orku. Ég hef ekki frétt af slíkum sjálfskiptingum í fólksbílum en vissulega væri það skemmtilegur kostur. Hins vegar er auðvelt að skipta niður í flestum sjálfskiptum bílum nú orðið því þeir eru yfirleitt annað hvort með hnapp við stýrið til að skipta upp eða niður eða að þetta sé hægt að gera með gírstönginni.

Með því að fylgjast með eyðslumælinum og nota gírana rétt er líka auðvelt að tileinka sér vistakstur án þess að fara á námskeið. Mjög margir ökumenn ættu að geta lækkað meðaleyðslu bílsins um 2-3 lítra á auðveldan hátt. Þetta þýðir 500-750 króna sparnað á hverjum 100 kílómetrum. Í bíl sem er ekið 20.000 km á ári þýðir þetta sparnað upp á 100.000-150.000 krónur á ári.

Annars skil ég ekki af hverju fólk sparar ekki bílana sína meira. Hvers vegna að vera að slíta bílnum sínum út í leiðinlegum akstri til og frá vinnu? Er ekki betra að nota bílinn frekar í ferðalögin eða aðrar skemmtiferðir, kvöldrúntinn og helgarferðirnar en taka strætó í vinnuna, hjóla eða labba? Þetta sparar líka gríðarlegar fjárhæðir og bíllinn endist miklu lengur. Bíll sem notaður er í stuttar ferðir til og frá vinnu slitnar tíu sinnum hraðar en bíll sem aðallega er ekið langar vegalengdir. Hvað er notalegra en að hugsa um fína Benzinn sinn hreinan og bónaðan heima, tilbúinn í eitthvað skemmtilegt í staðinn fyrir að hann standi skítugur fyrir utan vinnustaðinn?

Ef Íslendingar hættu að nota einkabílinn til að fara í vinnuna ættu þeir miklu meiri peninga til að fara í skemmtileg ferðalög.

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#36
margeirorn skrifaði:En hvað með þá orku sem verður til þegar menn bremsa? Sú orka er t.d. nýtt í að hlaða inn á rafbíla og eins þegar bíllinn rennur niður brekku. Volvo er ef ég man rétt að prófa slíkan búnað í sína bíla, þ.e. að hlaða bílinn þegar hann bremsar. Það þarf ekki öll orka að koma frá vélinni sjálfri til að sinna orkuþörfinni þó svo það sé svo í þessu tilviki eins og auglýst var á mbl.is.
Eins hafa menn nú keyrt heilan helling á sólarorkunni einni en á heldur óvenjulegum ökutækjum.

Getið þið svo rétt ímyndað ykkur hvað olíuframleiðendur eru tilbúnir í að eyða í að rýra alla umfjöllun um aðra möguleika í eldsneyti á bíla?

Ef það kostar ekki nema ca 7000kr. að útbúa svona fyrir bílinn... þá sé ég ekkert að því að prófa.

Ég er samt ekki að gefa í skyn að þetta vetnisdæmi virki. Vildi bara benda á að þetta er nokkuð sem er þess virði að skoða... sem og annað sem minnkar eyðslu.

Það eitt að mengun minnki væri jafnvel stór kostur.

Gaman að þessu :D
Eg mæli með þvi að þeir sem hafa ekki horft a myndina "Who Killed the Electric car", geri það. Hun er griðarlega ahugaverð.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#37
Já, en nú eru bara allt aðrir tímar. Olíufélögin eru sjálf farin að fjárfesta á fullu í endurnýjanlegri orkutækni, til dæmis vindorku, sólarorku og fleiru. Þetta gera þau af því að við höfum náð hámarki á framleiðslugetu olíu miðað við eftirspurn (peak oil). Héðan af minnkar því framleiðslugeta olíuríkjanna miðað við eftirspurn allt þar til olían verður orðin svo dýr að það borgar sig alls ekki að nota hana til brennslu. Olíufyrirtækin hafa því ekki lengur hag af því að hvetja til eins mikillar olíunotkunar og mögulegt er. Hagur þeirra er meiri af því að hasla sér völl í endurnýjanlegri orku og búa sig undir þá tíma þegar hin endanlega olíukreppa kemur. Í umræðunni um HHO-búnaðinn (vetnisgabbið) hefur einmitt verið nefnt að olíufyrirtæki hafi komið í veg fyrir að bílaframleiðendur settu svona búnað í alla nýja bíla. En það er auðvelt að rökstyðja að það sé einmitt hagur olíufyrirtækjanna að bílar verði sparneytnari. Það lengir þann tíma sem olíufyrirtækin geta selt olíu og bensín á bíla. Fyrirtækin geta þá nýtt í botn hækkandi olíuverð í stað þess að selja mestalla olíuna á tiltölulega stuttum tíma.

Myndin Who killed the electric car er því algjörlega úrelt og hefur ekkert gildi lengur enda eru allir bílaframleiðendur að þróa rafbíla til fjöldaframleiðslu. Það er ekki fyrr en á allrasíðustu árum sem raunhæft hefur orðið að fjöldaframleiða rafbíla. Bæði var olían allt of ódýr og rafgeymarnir allt of dýrir. Hvort tveggja hefur nú breyst og á eftir að breytast meira. Olían hækkar en rafgeymarnir lækka. Bíðið bara.

Hvers vegna haldið þið að Mercedes Benz hafi hannað þennan bíl:

http://inhabitat.com/mercedes-unveils-a ... -supercar/" onclick="window.open(this.href);return false;

Haldið þið að eitthvert olíufyrirtæki hafi verið að þvælast fyrir þeim þarna?

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

#40
Eitt sem hefur ekki veri nefnt er hitinn. LPG er mikið notað í gömlum bílum hér í Hollandi. Það er varla hægt að kaupa W123 án gaskúts. Gasið brennur heitar en bensín og þarf því að skipta um ventla og eitthvað fleira því annars brennur allt. Sleppur þetta vetnisdæmi eða þarf að setja harðari ventla í vélar til að þær endist eins og þær eiga að gera?
Bíllinn minn er þarna einhversstaðar. Þarf bara að finna hann.
cron