Gangvandræði (Hægagngur) E220.

#1
Jæja nú vantar mig einhvern snilling til þess að koma með góð ráð varðandi ganginn í bílnum hjá mér eins og segir í fyrirsögninni. Er búinn að fletta í gegnum allar síðurnar hérna og leita að einhverjum með sama vandamál enn hef ekki enn fundið nógu mikil svör.

Þetta byrjaði sem voða saklaus gangvandræði enn hefur ágerst á undanförnu, og er svo komið að hann drepur á sér í hvívetna þegar hann er í lausagangi, þegar maður stoppar á ljósum og stundum þegar maður hægir á sér á gatnamótum.

Setti strax ný kerti í hann frá NGK og innspýtingarhreinsi enn hann breyttist ekkert við það.

Hann fór í tölvu hjá TB og þar komu eingöngu villur varðandi spjaldhúsið. þreif það, enn breytti sama sem engu, setti annað notað spjaldhús í hann og skipti aftur um kertin (Bosch), enn hin nýju kertin (NGK) voru orðin mjög sótuð eftir mjög lítinn akstur. Allt kemur fyrir ekki og bílinn drepur ennþá á sér stanslaust, prófaði svo að taka eitt kertið aftur upp eftir smá lausagang og það var strax orðið sótað.

Einnig er þetta stykki eitthvað sem ég veit ekki alveg hvað gerir enn það er tengt við öndunina/loftið á spjaldhúsinu og það tikkar á köflum alveg fáranlega mikið í því, númerið á því er 001 140 80 60.

Hvað dettur mönnum í hug að geti verið að stríða mér?

Hafði hugsað mér að skipta næst um háspennukeflin og auðvitað á maður að vera búinn að skoða kertaþræðina vel og geri það líka næst.


Góðar ábendingar vel þegnar.


Ari S.

Re: Gangvandræði (Hægagngur) E220.

#2
ég átti í svipuðum vandræðum í E230, hann átti það til að drepa á sér þegar ég tók af stað, og hægagangurinn var allveg djöfullegur, ég prófaði að skipta um bensín síu og þetta hefur ekki gerst síðan( hún var bara stífluð)
veit ekki hvort þetta sé það hjá þér en það er þess virði að prófa það.
ég fékk síu á 3018 kr í stillingu ;)
gangi þér annars vel með þetta

Re: Gangvandræði (Hægagngur) E220.

#3
Árni91 skrifaði:ég átti í svipuðum vandræðum í E230, hann átti það til að drepa á sér þegar ég tók af stað, og hægagangurinn var allveg djöfullegur, ég prófaði að skipta um bensín síu og þetta hefur ekki gerst síðan( hún var bara stífluð)
veit ekki hvort þetta sé það hjá þér en það er þess virði að prófa það.
ég fékk síu á 3018 kr í stillingu ;)
gangi þér annars vel með þetta
Já það sakar allavega ekki að prófa það, hvar er hún annars staðsett?
Ari S.

Re: Gangvandræði (Hægagngur) E220.

#4
f50 skrifaði:
Árni91 skrifaði:ég átti í svipuðum vandræðum í E230, hann átti það til að drepa á sér þegar ég tók af stað, og hægagangurinn var allveg djöfullegur, ég prófaði að skipta um bensín síu og þetta hefur ekki gerst síðan( hún var bara stífluð)
veit ekki hvort þetta sé það hjá þér en það er þess virði að prófa það.
ég fékk síu á 3018 kr í stillingu ;)
gangi þér annars vel með þetta
Já það sakar allavega ekki að prófa það, hvar er hún annars staðsett?
Undir bílnum, sennilega farþega meginn. Minnir það allavega.

Mér hefur alltaf þótt best að taka allt bensín unitið undan þegar ég skipti um þetta. Þ.e. dæluna, síuna og hitt dótið...sem er öruglega líka sía eða eitthvað... Það er fest upp með 4 upphengjum, 2 rafmagnssnúrum (í dæluna) og slöngunum auðvitað. Það er mikð þægilegra að taka allt undan og skipta, en að reyna að skipta bara um síuna undir bílnum.
Nærð líka að herða betur þannig. Ég myndi skipta um kopar skinnunar (þéttiskinnur) allstaðar fyrst þetta er komið undan.

Mikilvægt er að klemma bensínslönguna saman áður en hún er tekin af, annars færðu bensín yfir andlitið... Eins og gerðist hjá mér þegar ég skipti um þetta í 190e sem ég átti... (í 190e er bensín unitið bílstjóra meginn)...

Eða henda dollunni á verkstæði og hætta að hugsa um þetta :D