Gangvandræði (Hægagngur) E220.
Innsent: 17 Nóv 2010, 20:17
Jæja nú vantar mig einhvern snilling til þess að koma með góð ráð varðandi ganginn í bílnum hjá mér eins og segir í fyrirsögninni. Er búinn að fletta í gegnum allar síðurnar hérna og leita að einhverjum með sama vandamál enn hef ekki enn fundið nógu mikil svör.
Þetta byrjaði sem voða saklaus gangvandræði enn hefur ágerst á undanförnu, og er svo komið að hann drepur á sér í hvívetna þegar hann er í lausagangi, þegar maður stoppar á ljósum og stundum þegar maður hægir á sér á gatnamótum.
Setti strax ný kerti í hann frá NGK og innspýtingarhreinsi enn hann breyttist ekkert við það.
Hann fór í tölvu hjá TB og þar komu eingöngu villur varðandi spjaldhúsið. þreif það, enn breytti sama sem engu, setti annað notað spjaldhús í hann og skipti aftur um kertin (Bosch), enn hin nýju kertin (NGK) voru orðin mjög sótuð eftir mjög lítinn akstur. Allt kemur fyrir ekki og bílinn drepur ennþá á sér stanslaust, prófaði svo að taka eitt kertið aftur upp eftir smá lausagang og það var strax orðið sótað.
Einnig er þetta stykki eitthvað sem ég veit ekki alveg hvað gerir enn það er tengt við öndunina/loftið á spjaldhúsinu og það tikkar á köflum alveg fáranlega mikið í því, númerið á því er 001 140 80 60.
Hvað dettur mönnum í hug að geti verið að stríða mér?
Hafði hugsað mér að skipta næst um háspennukeflin og auðvitað á maður að vera búinn að skoða kertaþræðina vel og geri það líka næst.
Góðar ábendingar vel þegnar.