Sælir,
Hann tók allt í einu uppá því að harðneita að fara í gang. Malaði einsog köttur síðast þegar ég var á honum en sýnir engin viðbrögð núna. Er eitthvað algengt sem gæti verið að hrekkja mig? ég heyri í bensíndælunni og það er nýlega búið að skipta um síu. Kveikjulok og hamar eru frá því síðasta vetur og kerti og þræðir eru ekki gamlir heldur. En hann sýnir engin viðbrögð, ekki einn lífshósta...
Dettur einhverjum í hug hvað gæti verið að hrekkja? Þetta er M104. 3.0l
300ce 93' fer ekki í gang
#1Guðmundur Kristinn Guðmundsson
Mercedes Benz 300 ce-24v sportline 1993' (C124)
Mercedes Benz 300 ce-24v sportline 1993' (C124)