Síða 1 af 1

300ce 93' fer ekki í gang

Innsent: 01 Okt 2010, 14:33
frá Gummi Kei
Sælir,

Hann tók allt í einu uppá því að harðneita að fara í gang. Malaði einsog köttur síðast þegar ég var á honum en sýnir engin viðbrögð núna. Er eitthvað algengt sem gæti verið að hrekkja mig? ég heyri í bensíndælunni og það er nýlega búið að skipta um síu. Kveikjulok og hamar eru frá því síðasta vetur og kerti og þræðir eru ekki gamlir heldur. En hann sýnir engin viðbrögð, ekki einn lífshósta...

Dettur einhverjum í hug hvað gæti verið að hrekkja? Þetta er M104. 3.0l

Re: 300ce 93' fer ekki í gang

Innsent: 01 Okt 2010, 21:23
frá Ásgeir Örn
Snýr hann startarnum? Ef ekki geturðu prófað að banka í hann.

Re: 300ce 93' fer ekki í gang

Innsent: 01 Okt 2010, 23:43
frá Benzo
.

Re: 300ce 93' fer ekki í gang

Innsent: 02 Okt 2010, 11:29
frá Gummi Kei
já hann flugstartar!

nýtt háspennukefli er kanski möguleiki!