Lýsir sér þannig að þegar ég ætla að gangsetja bílinn þá kemur glóðarkertaljósið ekki upp þegar ég svissa á hann, en hann fer samt í gang þó það sé eins og hann hiti sig ekki. Síðan eftir örlitla stund þá kveikir hann glóðarhitaraljósið og það logar bara, hvað getur þetta verið? Farið glóðarkerti kannski ?
Kveðja Elmar
Re: Glóðarkerta ljós logar í 124 250 D
#2Farið glóðarkerti eða stýringin fyrir glóðarkertin 
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Re: Glóðarkerta ljós logar í 124 250 D
#3Hvernig get ég komist að því hvort heldur er stýringinn eða kerti?
Re: Glóðarkerta ljós logar í 124 250 D
#4Það er hægt að hleypa straum inná kertin til að tékka á þeim, ef þau taka straum eru þau væntanlega í lagi, best að gera það þar sem þau tengjast inná stýringuna, hún er staðsett í innrabrettinu bílstjóramegin.Elmar Þór skrifaði:Hvernig get ég komist að því hvort heldur er stýringinn eða kerti?
Til að tékka á stýringunni þarf að skrúfa það box í sundur og tékka á hvort eitthvað er brunnið í sundur þar
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Re: Glóðarkerta ljós logar í 124 250 D
#5Sæll, þessi lýsing er alveg eins og hjá mér. Byrjaðu á að aftengja kertin, mældu þau síðan með ommæli þá sérðu ef eitt eða fleiri kerti eru ónýt. Ég fann ónýta kertið svona hjá mér. Einfaldast að byrja á þessu.
Re: Glóðarkerta ljós logar í 124 250 D
#6Þakka fyrir skjót svör
en er ekki allt í lagi að keyra hann svona svo framarlega sem ekki eru vandræði að koma honum í gang, það er eins og það vannti glóðarkerti því hann fer í gang en það kemur smá reykur úr honum rétt eftir að hann er kominn í gang.