Glóðarkerta ljós logar í 124 250 D

#1
Lýsir sér þannig að þegar ég ætla að gangsetja bílinn þá kemur glóðarkertaljósið ekki upp þegar ég svissa á hann, en hann fer samt í gang þó það sé eins og hann hiti sig ekki. Síðan eftir örlitla stund þá kveikir hann glóðarhitaraljósið og það logar bara, hvað getur þetta verið? Farið glóðarkerti kannski ?

Kveðja Elmar


Re: Glóðarkerta ljós logar í 124 250 D

#4
Elmar Þór skrifaði:Hvernig get ég komist að því hvort heldur er stýringinn eða kerti?
Það er hægt að hleypa straum inná kertin til að tékka á þeim, ef þau taka straum eru þau væntanlega í lagi, best að gera það þar sem þau tengjast inná stýringuna, hún er staðsett í innrabrettinu bílstjóramegin.
Til að tékka á stýringunni þarf að skrúfa það box í sundur og tékka á hvort eitthvað er brunnið í sundur þar :D
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000