Re: Mercedes Benz 220E
#13Haha takk fyrir, ætla að reyna að afsaka mig með því að það var klesst á hann 31 janúar og ég var í 3 vikna basli við bölvað tryggingarfélagið. Þeir vildu meina að ég væri í órétti en ég sagði þeim frá fyrsta degi að ég væri viss umm að ég væri í 100% rétti þar sem ég var búinn að kanna árekstrarsvæðið að fullu.Benzari skrifaði:Töff.
Til hamingju með skoðunarsektina.![]()
Þeir þvertóku fyrir það að ég væri í rétti, þannig að ég krafðist þess að málið yrði tekið í tjónanefnd sem það var svo gert og ég dæmdur í 100% rétti 3 og hálfri viku eftir að áreksturinn átti sér stað og þá var liðið langt á febrúar, þegar ég á semsagt að fara í skoðun. Þá þurfti að gera við bílinn á verkstæði sem mér leist ekkert á og vinnubrögð þess verkstæðis staðfestu hugmyndir mínar um það. Fyrir verkstæðið að panta hurðina tók næstum viku og þá var sprautað hurðina í grænum lit sem er fjarskyldur ættingi blauschwarz metallic. Ég krafðist þess að hurðin yrði sprautuð aftur í lit sem væri nú eitthvað líkur blauschwarz og það tók 3 daga í viðbót. Þá er bara kominn mars og maður á fullu í skóla og vinnu eftir skóla og hefur engann tíma til að koma sér í bæinn í skoðun því að fara í skoðun hérna á Akranesi er bara fáránlegt, þeir sem þekkja til akranes og skoðunarstöðvarinnar þar vita þetta alveg.
En svo ætla ég bara að kenna prófatörninni um að hafa ekki komist í þetta
'93 W124 220E Blauschwartz metallic
Kristinn Svavarsson 868-2296
Kristinn Svavarsson 868-2296
Re: Mercedes Benz 220E
#14Já hann er sko landsþekktur sá gamli á Frumherja á Skaganum.
Gott að þú fékkst tjónið bætt.
Gott að þú fékkst tjónið bætt.
Teddi 
Re: Mercedes Benz 220E
#15Takk takkBenzari skrifaði:Já hann er sko landsþekktur sá gamli á Frumherja á Skaganum.![]()
Gott að þú fékkst tjónið bætt.
'93 W124 220E Blauschwartz metallic
Kristinn Svavarsson 868-2296
Kristinn Svavarsson 868-2296
Re: Mercedes Benz 220E
#16Þessi er hörkuflottur 
1990 Mercedes Benz 500SE Blauschwarz Metallic.
1992 Mercedes Benz S600 Bournit Metallic.
2002 Mercedes Benz S430L Obsidian Black.
2008 Mercedes Benz GL500 Cubanite silver.
2005 Ford Mustang GT.
1957 Chevrolet Belair.
1992 Mercedes Benz S600 Bournit Metallic.
2002 Mercedes Benz S430L Obsidian Black.
2008 Mercedes Benz GL500 Cubanite silver.
2005 Ford Mustang GT.
1957 Chevrolet Belair.