Hérna er fyrsti bíllinn minn, W124 220E.
Hef átt hann í næstum eitt ár núna og hef verið að dunda aðeins í.
Fékk hann í júní á síðasta ári, þá var hann keyrður um 250 þúsund kílómetra. Þá var hann á ekkert alltof flottum felgum og með tau innréttingu en er núna kominn á 18" Monoblock AMG felgur og með leður innréttingu og svart málað plastið í grillinu sem kemur bara mjög vel út.
Það sem ég hef í huga fyrir hann í sumar og með tímanum eru :
-Nýr stuðari að framan
-Filmur í löglegar rúður
-gorma hringinn
-dempara hringinn
-Nýtt stýri (ef eg finn til sölu týpuna sem mig langar í)
-Pólera lipp á felgum
-Ryðbætingar
-Ný frambretti
Það er svona það helsta sem ég hafði hugsað mér en ég læt mig dreyma um heilmálun og mótorswap í m119 en það verður örugglega ekkert gert á næstu árum. Með hjálp góðra og duglegra frænda á bakvið nafnið Eðalstjarna og góðra vina var sett í leður innrétting, það var smá vesen að losa framsætin og festa ný í og ég þakka frændum mínum fyrir alla hjálpina sem þeir hafa veitt mér, þeir eru höfðingjar heim að sækja.
Læt nokkrar myndir fylgja