Keypti þennan bíl af manni hér á spjallinu í ágúst 2012
Ætlaði víst að setja inn data card, en EPC virkar hvorki í nýju né gömlu tölvunni.
En það er nú ekki mjög mikið af aukabúnaði í bílnum.
Það sem ég hef gert fyrir bílinn síðan ég keypti hann seinnipartin 2012 er :
Stólpúðar að aftan
Olía og sía á skiptingu
Olía og sía á vél
Loftsía
Smurolíuþrýstingsskynjari
Allt nýtt í bremsum að aftan
Ný tímakeðja, sleðar og strekkjari
Ventlalokspakkning
Kerti
Láskjarni í sviss
Air flow sensor
Kælivatn og frostlög x2
Toppur sprautaður og ný framrúða
Afturdemparar
Hurðastrekkjarar að framan
Rafgeymir
Stöðvaði leka frá drifinu
Drifskaftspúðar fremri og aftari, lega og upphengja
Liðkaði upp og smurði rúðuupphalarar sem voru orðnir slappir
Plastið sem var horfið í framstúðaranum
Bíllinn átti til að leka þegar rigning var úti eða snjór og safnaðist saman í honum, var nokkrum sinnum fundið ný og ný göt og endaði svo að sprauta toppinn og gera við ryð sem var á dyrastafnum og hefur ekki vatn sést síðan.
Það sem ég á eftir að gera við bílinn er að klára sprauta hann þegar ég kemst aftur til vinnu,
setja afturgardínuna í hann sem ég á til,
Skipta um loftnet,
Finna út af hverju viðvörunarljós fyrir ASD'ið kviknar alltaf þegar ég fer 70 km/h +,
Laga sætishitarana sem að hættu að virka einn daginn og hafa valdið mér löngum hugarveltunum,
Og örugglega eitthvað sem ég man ekki eftir.
Planið er að fara í eurotour til þýskalands og Póllands í vor og kaupa aðrar felgur og láta leðra sætin og hurðaspjöldin, þar sem mér finnst þetta ekki alveg vera gera sig.
Myndirnar eru frá fyrri eiganda þar sem ég á ekki myndavél en reyni að taka aðrar á næstunni.
Bíllinn stendur núna inni á lyftu þar sem ég er að klára að fínpússa hann eftir keðjuskipti og fleira dútl.
Hef reynt að gera allt sjálfur fyrir bílinn en hefur komið fyrir að ég þurfi að senda hann til doktorsins sem sér alltaf vel um hann
Reyni svo að bæta við þetta hægt og hægt, og vonandi kemst ég á samkomu einn daginn sem hafa einvernmegin alltaf verið þegar ég er fjarverandi
mbk. Pascal