Ég er búinn að vera að gera heilmikið fyrir hann, skipti um spindla, bremsudiska, bremsuklossa, stýrisenda, bremsurör útí bæði afturhjól og undir miðjan bíl og svo bensínrörin ásamt smurningu sem hafði greinilega ekki verið framkvæmd í nokkur ár því það kom nánast bara tjara neðan úr bílnum, svo var hann stilltur aftur þar sem gangurinn var nokkuð hraður og svo er hjólastilling í næstu viku þegar ég er búinn að fara með hann í endurskoðun
Svo er ég búinn að panta viðgerðarsett fyrir bæði afturbrettin hjá Doktornum og þarf að drífa mig í að sækja þau.
Er búinn að finna bæði frambrettin, orginal og svo til óryðguð og svo báðar framhurðarnar óryðgaðar...
Þá vantar mig bara afturhurðarnar....
Þetta er semsagt W126 280 SEL skráður þann 01.janúar árið 1983, verður semsagt 31 árs núna þann 1 janúar næstkomandi, ber alls ekki aldurinn með sér, þó að það þurfi að laga eitt og annað
Hann er kominn núna með 2015 skoðun, meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem voru teknar í sumar þegar molinn var bónaður og blettaður, það þarf svo að heilsprauta hann við fyrsta tækifæri en aðalatriðið núna er að stöðva frekari ryðmyndun
Svo er ég að leita af oldschool W126 felgum undir hann, Rial, BBS, AMG eða sambærilegt
Meira síðar