Jæja, sætin komu frá Dr. Leður rétt fyrir jól og það er engin smá munur á þessu;
Fyrir:

Eftir:

Reyndar varð ég fyrir smá vonbrigðum þegar ég var búinn að seta seturnar aftur í og ætlaði að láta bílinn í gang, því ekkert gerðist
Á meðan sætin voru í viðgerð hafði ég notað tímann og skipt um barka í bílstjórasætinu sem losar bakið til að fella það fram. Þetta eru tveir barkar og annar þeirra var slitinn þannig að ekki var hægt hreyfa það. Þetta var ekkert sem skiptir máli, því enginn fer þarna afturí hvort sem er, en ég vil hafa þetta í lagi. Auðvitað var sá barki slitinn sem er hálf vonlaust að skipta um; hverfur inn í burðarbitann rétt fyrir neðan handfangið. Sætið í þessum bíl er dálítið mikið unit með öryggisbeltinu innbyggðu, og er því sér styrkt. Ég þurfti að smíða mér ýmis verkfæri til að koma þessu úr og nýja barkanum í. Var fyrirfram búinn að dæma þetta vonlaust, en þetta hafðist þó á þrjóskunni. Í hamaganginum bæði við það að skipta um barkann og taka seturnar úr, var ég búinn færa sætin það oft fram og til baka með hurðarnar opnar og inniljósin kveikt, að bíllinn var auðvitað orðinn rafmagnslaus og fór því ekki í gang.
Þar sem skottlæsingin var einnig föst hafði ég notað tækifærið og rifið hana úr og látið í viðgerð á sama tíma og sætin. Þegar ég fékk seturnar aftur var skottlæsingin enn í viðgerð og eftir að hafa hlaðið geyminn, reyndi ég að seta bílinn í gang án læsingarinnar. Startarinn snérist á fullu, en bíllinn vildi ekki í gang. Í fyrstu var ég viss um að það væri svona immobilizer viðbjóður í bílnum og nú væri það kerfi búið að loka fyrir ræsingu af því að skottlæsinguna vantaði

Eftir að hafa fengið hana til baka og reynt ýmsar tiktúrur með IR fjarstýringunni sem mér hafði verið ráðlagt gekk ekkert. Bíllinn vildi ekki í gang. Þegar hér var komið ég var reyndar sannfærður um að eitthvað annað væri að
Rafmagnsbilanir af þessu tagi eru eitthvað sem ég fæst ekki við, þannig að ég hafði samband við Þröst hér á spjallinu. Ég verð að hrósa honum fyrir frábæra og hárnákvæma bilanagreiningu!

Ég var orðinn ansi stressaður um að nú myndi ballið byrja eina ferðina enn með getgátum um að þetta og hitt væri bilað og tilraunum því tengdu með því að skipta út hlutum, oftast án árangurs nema í allnokkrum atrennum; "trial by error" kallast það. Nei, málið var skoðað, rannsakað og komist að niðurstöðu með því að sannreyna hvað væri að! Þannig eiga faglegar bilanagreiningar líka að vera! Orsökin var reyndar ekki mjög flókin, en að komast að henni vil ég þakka og hrósa Þresti fyrir!
Hér er hún í öllu sýnu veldi;

Þetta er tengi frá MAS relay-inu niður í bensíndælur.