Jæja, búið að vinna töluvert í þessum, allt rafmagnsvesen að baki og nú er bara að byggja hann upp útlitslega
Ég er búinn að vera í sambandi við fyrirtæki í Bandaríkjunum varðandi nýtt leður, en þeir eru mjög sanngjarnir í verði og hafa verið mjög hjálplegir.
Hér er sýnishorn af fyrstu prufu frá USA;

Leit reyndar ekki vel út en eftir að hafa skrifað þeim og sent þessa mynd fékk ég önnur sýnishorn sem voru öllu líkari. Liturinn er víst ekki Java, heldur það sem þeir kalla Saddle;

Við nánari skoðun og álit helstu sérfræðinga í þessum efnum hérlendis er þó hægt að gera þetta leður sem er á sætunum nokkuð gott með viðgerð. Ég fór fyrst í Dr. Leður og hann sagðist geta gert þetta eins og nýtt. Fór svo í heimsókn til Auðuns bólstrara til að fá hans álit og hann eiginlega vísaði mér bara aftur til Dr. Leðurs, en það þarf að lita þessi sæti upp á nýtt sem hann treysti leðurlækninum betur til að gera.
Svo fór að ég pantaði tíma hjá Dr. Leður og sætin verða gerð upp eftir helgi, þannig að það var ekkert annað að gera en að rífa sætin úr, ja eða seturnar. Mér finnst þessi sæti nefnilega nokkuð vel hönnuð, því það er ekki nema hluti af sætunum sem mæðir á við þessa venjulegu notkun. Það er nokkuð auðveldlega hægt að rífa seturnar úr og eftir situr sætið sjálft sem er reyndar heilmikið gizmo ef út í það er farið. Í raun eru seturnar ekki nema lítill hluti af sætinu, en t.d. öryggisbeltið og allt sem því fylgir er í sætinu sjálfu.
Hér eru seturnar 4 komnar úr;

Og hér eru sætin sjálf;

Fyrir utan þessar smálagfæringar, hef ég verið að þrífa bílinn sem ekki veitti af. Hér má t.d. sjá hvernig mottan í skottinu leit út þegar ég byrjaði að þrifa hana;

Hér áður fyrr þegar ég keypti bíla/Benza, þá var það oftast mitt fyrsta verk að fara með þá heim til Geirs frænda, fyrrverandi forstjóra Ræsis til að sýna honum bílinn. Hann kom yfirleitt út og án þess að horfa á bílinn og gekk hann afturfyrir hann, opnaði skottið, skoðaði allt þar og lyfti upp mottunni og rannsakaði þennan hluta bílsins fyrst af öllu. Mér fannst þetta mjög skítið fyrst og spurði hann hversvegna hann hefði þennan háttinn á. Hann svaraði um hæl; „Ég sé strax hvernig hefur verið gengið um bílinn í gegnum tíðina þegar ég opna skottið!“. Nokkuð til í þessu hjá kallinum við nánari íhugun
Hér eru svo nokkrar myndir fyrir og eftir skottþrifnað;

Svo voru stefnuljósin orðin eitthvað lasin, þannig að ég pantaði ný, en þau voru að koma í dag. Þau sem voru fyrir voru hvít, en ég er bara svo skrítinn að mér finnst þetta verða að vera appelsínugult. Hitt gerir bílinn bara eitthvað svo litlausan.
