Aftur til lífsins á CLK

#1
Jæja gott fólk, maður getur farið að láta sjá sig hérna aftur eftir þriggja ára hlé þar sem ég er loksins að komast á Benz aftur en ég hef ekki átt bíl síðan ég flutti frá Íslandi vorið 2010 og ekki Benz síðan ég seldi hvíta 420 SEL-sófann minn með tár í augum í apríl 2009. Þetta stendur allt til bóta núna sennilega bara á morgun með þessum:

http://www.finn.no/finn/car/used/object ... e=36884037" onclick="window.open(this.href);return false;

Reynsluakstur fór fram í kvöld hjá Egeland Auto hérna í Sandnes og skildi eftir tilfinningar. Virðist vera eintak sem passað hefur upp á. Eina skilyrðið er að hann komi vel út úr þjöppumælingu hjá honum Axel bifvélavirkja sem er frændi konunnar og með verkstæði í Stavanger en þetta fer fram annað kvöld. Spennandi að fylgjast með útkomunni úr því og hvort maður verði kominn á þennan grip fyrir helgi. 49.000 NOK er heldur undir almenna markaðsverðinu hér fyrir sambærilega gripi. Spyrjum að leikslokum...


Auk þess legg ég til að Karþagóborg verði lögð í eyði.

Re: Aftur til lífsins á CLK

#2
Velkominn aftur og til hamingju með CLK (þ.e. ef hann stenst þjöppumælinguna). Huggulegasti gripur að sjá. Það virðist vera hægt að finna ýmsa góða Benza á finn.no. Er þetta ekki annrs bland.is ykkar "norsara" ? :)
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Aftur til lífsins á CLK

#5
Það er gott að heyra þetta með eyðsluna, ekki veitir af hér. Jón Valur: Jú, finn.no er bara markaðssvæði, leiguíbúðir, bílar, utanlandsferðir, reiðhjól, gefins húsgögn...við keyptum eldavél þaðan á 300 kall norskar í vor. You name it.

En alla vega, þetta gekk eftir. Þjappan kom út á 12,5, 13, 13 og 13,5 minnir mig. Alla vega allt alveg í jafnvægi. Þið getið lesið mestallt um málið hérna:

http://www.atlisteinn.is/index.php?opti ... &Itemid=61" onclick="window.open(this.href);return false;

Það verður gaman að sjá hvernig þessi kemur út í samanburði við fyrrverandi kærusturnar: 230 E 1988, 420 SEL 1991 og 300 CE 1993.

Atli
Auk þess legg ég til að Karþagóborg verði lögð í eyði.