Aftur til lífsins á CLK
Innsent: 04 Sep 2012, 19:53
Jæja gott fólk, maður getur farið að láta sjá sig hérna aftur eftir þriggja ára hlé þar sem ég er loksins að komast á Benz aftur en ég hef ekki átt bíl síðan ég flutti frá Íslandi vorið 2010 og ekki Benz síðan ég seldi hvíta 420 SEL-sófann minn með tár í augum í apríl 2009. Þetta stendur allt til bóta núna sennilega bara á morgun með þessum:
http://www.finn.no/finn/car/used/object ... e=36884037" onclick="window.open(this.href);return false;
Reynsluakstur fór fram í kvöld hjá Egeland Auto hérna í Sandnes og skildi eftir tilfinningar. Virðist vera eintak sem passað hefur upp á. Eina skilyrðið er að hann komi vel út úr þjöppumælingu hjá honum Axel bifvélavirkja sem er frændi konunnar og með verkstæði í Stavanger en þetta fer fram annað kvöld. Spennandi að fylgjast með útkomunni úr því og hvort maður verði kominn á þennan grip fyrir helgi. 49.000 NOK er heldur undir almenna markaðsverðinu hér fyrir sambærilega gripi. Spyrjum að leikslokum...