Læt hér fylgja með nokkrar myndir til að byrja með.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14711917/PICT2465.JPG[/img]
Ekki leiðinlegt að eignast sinn fyrsta bíl, hvað þá þegar um Benz er að ræða.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14711917/PICT2466.JPG[/img]
Og þarna er heldur betur gott að vera.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14711917/PICT2477.JPG[/img]
Pabbi var síðan svo góður að taka hann og þrífa lauslega og hreinsa felgurnar og það breytti miklu, allur mikið virðulegri á hreinum felgum. Annars keypti ég með honum aðrar, fallegar 17" sem þið hafið eflaust séð á eldri myndum frá fyrri eiganda, og þær fara undir fljótlega.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14711917/PICT2479.JPG[/img]
Svona leit þetta síðan út fyrr í dag (14. maí)... hreinsaði mesta snjóinn af áðan en þarf að skella honum inn í bílskúr þegar mamma er farin í vinnu í fyrramálið. Gengur ekki að drossían á heimilinu sitji úti í snjónum.
Ég kem síðan ábyggilega til með að henda inn fleiri myndum og uppfæra þráðinn þegar eitthvað er búið að gera.