Mercedes-Benz 300CE 24v Sportline '93
Innsent: 15 Maí 2012, 01:51
Eftir að hafa fylgst með hérna á spjallinu í lengri tíma eignaðist ég minn fyrsta Benz þann 26. apríl síðastliðinn, og þar með minn fyrsta bíl. Um er að ræða 1993 árgerð af Mercedes-Benz 300CE 24v Sportline, eins og fram kemur í titlinum, sem auglýstur var til sölu hérna á spjallinu fyrir nokkru. Ég hef verið Benz aðdáandi frá því að ég man eftir mér en nú get ég loksins kallað mig Benz eiganda. Bíllinn er ekinn rétt rúma 275þús. kílómetra og er hreint yndislegur í akstri. Þó þarf aðeins að dytta að og er lakkið t.d. orðið frekar slappt á húddinu og frambrettinu farþegamegin, glæran farin að flagna af. Einnig er nokkur grjótbarningur og smá ryð byrjað, t.d. í hjólbogum, sem þarf að stoppa. En nógu langt er í bílprófið þannig að núna er bara að dekra við gripinn þangað til að því kemur.
Læt hér fylgja með nokkrar myndir til að byrja með.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14711917/PICT2465.JPG[/img]
Ekki leiðinlegt að eignast sinn fyrsta bíl, hvað þá þegar um Benz er að ræða.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14711917/PICT2466.JPG[/img]
Og þarna er heldur betur gott að vera.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14711917/PICT2477.JPG[/img]
Pabbi var síðan svo góður að taka hann og þrífa lauslega og hreinsa felgurnar og það breytti miklu, allur mikið virðulegri á hreinum felgum. Annars keypti ég með honum aðrar, fallegar 17" sem þið hafið eflaust séð á eldri myndum frá fyrri eiganda, og þær fara undir fljótlega.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14711917/PICT2479.JPG[/img]
Svona leit þetta síðan út fyrr í dag (14. maí)... hreinsaði mesta snjóinn af áðan en þarf að skella honum inn í bílskúr þegar mamma er farin í vinnu í fyrramálið. Gengur ekki að drossían á heimilinu sitji úti í snjónum.
Ég kem síðan ábyggilega til með að henda inn fleiri myndum og uppfæra þráðinn þegar eitthvað er búið að gera.